Viðtal við J.K. Rowling -Þýtt af Önnu Heiðu Pálsdóttur- 24. septemer 2001 Stjórnandi: Gott kvöld. Þetta er einstakur viðburður - hér er frægasti rithöfundur í heimi. Velkomin, J.K. Rowling. J.K. Rowling: Þakka þér fyrir! Stjórnandi: Í kvöld, þar sem við höfum svo margar spurningar, báðum við ykkur um að senda þær inn fyrirfram. Ég er búinn að fara í gegnum þær allar - verður þin spurning notuð? Við erum einnig með tvo áhugasama aðdáendur, strák sem kallar sig Firebolt og stelpu sem kallar sig Nimbus. Þau spyrja Rowling líka spjörunum úr. Nimbus, við skulum byrja á þér. . . Nimbus: Fröken Rowling, heldur þú að gerð kvikmyndarinnar um Harry Potter hjálpi fólki að skilja bækurnar betur eða skemmir hún hugmyndirnar í bókunum? J.K. Rowling: Ég held að fólk þurfi enga aðstoð til þess að skilja bækurnar. Ég vona að kvikmyndin verði góð og valdi aðdáendum ekki vonbrigðum. Persónulega get ég varla beðið eftir því að sjá Quidditch. Stjórnandi: Og nú yfir til Firebolt. . . Firebolt: Fröken Rowling, hvers vegna skrifaðir þú um galdra og seið? J.K. Rowling: Ég fékk hugmynd að dreng sem var galdramaður og vissi ekki enn hver hann væri. Ég settist aldrei niður og hugsaði, „hvað á ég að skrifa um næst?“ Þetta bara valt upp úr mér, fullskapað. Stjórnandi: Hér er spurning frá Emily: Þegar fólk skiptir Muggaseðlum yfir í galdraseðla, hvað gerir Gringott-bankinn við Muggapeninginn? J.K. Rowling: Svartálfarnir eru útsmognir. Þeim tekst að setja Muggapeningana aftur í umferð. Þeir eru sannarlega lúmskir. Stjórnandi: Hér er spurning frá Tiger Lily: Hvaða atvinnu höfðu James og Lily Potter þegar þau voru á lífi? J.K. Rowling: Nú, ég get ekki farið út í nein smáatriði, því þið munuð komast að þessu í seinni bókum. En James fékk mikil auðævi í arf svo hann þurfti ekki á launahárri stöðu að halda. Þið eigið eftir að komast að fleiru um foreldra Harrys. Stjórnandi: Einhver sem kallar sig Wizard spyr: Ef ÞÚ færir í Hogwartskóla, í hvaða húsi myndir þú lenda? J.K. Rowling: Gott val á nafni, Wizard. Ég myndi nú áreiðanlega velja Gryffindor af augljósum ástæðum, en mig grunar að þeir myndu setja mig í Ravenclaw. Nimbus: Fröken Rowling, hvaðan færðu þessi nöfn á persónur og hluti, eins og til dæmis Quidditch? J.K. Rowling: Quidditch er orð sem ég fann upp. Mig vantaði orð sem byrjaði á bókstafnum Q (ég veit ekki af hverju, mér datt þetta bara í hug). Nokkur nafnanna koma af landakortum, til dæmis Snape, sem er nafn á ensku þorpi. Firebolt: Frk. Rowling, hefur þú einhvern tíma gert kort eða grunnteikningu af skólanum? J.K. Rowling: Nei, því stigarnir eru alltaf að færast til og herbergi birtast þar sem engin voru áður, og hlutirnir eru bara á allt of mikillih hreyfingu. En ég er með glósubók sem minnir mig á hvaða hæð hitt og þetta er, bara til að hafa hlutina á hreinu. Og auðvitað, ef eitthvað hreyfist úr stað, þá get ég kennt göldrum um en ekki eigin mistökum. Stjórnandi: J og L spyrja: Hvað finnst þér um fólkið sem vill banna bækurnar þínar? J.K. Rowling: Ég held að það sé . . . umm . . . hvað er rétta orðið? Á villigötum. Að mínum dómi eru bækurnar siðferðislega réttar. Allir hafa rétt á sínum skoðunum en þeir eiga ekki að troða þeim upp á aðra! Stjórnandi: Narri spyr: Dýrið sem maður breytist í sem kvikskiptingur (animagi), endurspeglar það persónuleika manns? J.K. Rowling: Skarplega ályktað hjá þér, Narri! Mig langar að trúa því að ég myndi breytast í otur, sem er uppáhalds dýrið mitt. Hugsaðu þér hvað það væri hryllilegt ef ég breyttist í kakkalakka! Stjórnandi: Jessica spyr: Er frægðin erfið að fást við? J.K. Rowling: Stundum er hún dásamleg, eins og núna, þegar ég fæ að hitta fjölmarga lesendur. Stundum er hún þó erfið, þegar blaðamenn koma til dæmis og banka upp á hjá mér þegar ég er að elda matinn. Stjórnandi: Jasmine spyr: Hvenær á Hermione afmæli? J.K. Rowling: Hermione á afmæli 19. september. Nimbus: Kom þér til hugar að hafa stelpu í aðalhlutverkinu? J.K. Rowling: Nei, eiginlega ekki - helst vegna þess að Harry skaut inn í huga minn í formi stráks. Og þegar ég var búin að skrifa um hann í nokkra mánuði, þá var hann orðinn mér of raunverulegur til að ég gæti breytt honum. Hermione er aftur á móti svo náinn vinur minn að mér finnst ég ekki hafa svikið stelpur! Stjórnandi: Hér er svo mikið af fólki sem kallar sig „Harry Potter“ á listanum mínum! Einn af þeim spyr: Hvers vegna var sigurblik í augunum á Dumbledore í lok fjórðu bókarinnar? J.K. Rowling: Góð spurning . . . frábær spurning, reyndar, og eins og gerist með allar bestu spurningarnar sem ég fæ, þá get ég ekki svarað henni! Því það myndi gefa of miklar upplýsingar. En þetta sýnir athyglisgáfu. Skemmtið ykkur vel við að velta svarinu fyrir ykkur - einhver hlýtur að hitta á rétta svarið! Stjórnandi: Samoran spyr: Hvers vegna verða sumir galdramenn eða konur að draugum en aðrir ekki? J.K. Rowling: Önnur frábær spurning en ég get svarað því að þú kemst að meiru um þetta í fimmtu bókinni. Firebolt: Fröken Rowling, eftir fyrstu bókina, þá hættir þú að breyta enskum orðum í amerísk. Er einhver ástæða fyrir því? J.K. Rowling: Við hættum því eiginlega ekki en fjöldi þeirra orða sem breytt var hefur heldur verið ýktur! Við breyttum bara orðum sem höfðu aðra merkingu á „amerísku“, til dæmis orðið „jumper“ sem þýðir peysa á ensku en hér í Bandaríkjunum eitthvað sem bara litlar stelpur ganga í! Stjórnandi: Jeanie spyr: Ég held að augnalitur Harrys skipti máli í seinni bókunum. Er það rétt? J.K. Rowling: Hmmmm . . . kannski! Nimbus: Fröken Rowling, mun Voldemort einhvern tíma deyja? J.K. Rowling: Heldurðu í fyllstu alvöru að ég myndi svara þessu?! Stjórnandi: Annar „Harry Potter“ spyr: Hvaðan fékk James Huliðsskikkjuna? J.K. Rowling: Hann erfði hana frá föður sínum - þetta er erfðagripur! Stjórnandi: Enn annar „Harry Potter“ spyr: Búa allir yfir einhverjum göldrum? Meira að segja Muggar? Og ef þeir gera það ekki, hvernig byrjuðu þá galdrar? J.K. Rowling: Ég held að við gerum það öll (fyrir utan bækurnar), en í bókunum - heldur þú virkilega að Vernon frændi búi yfir einhverjum galdramætti? Töframáttur er ein af þessum gáfum sem sumir hafa og aðrir ekki. t Nimbus: Fröken Rowling, hver er uppáhalds töfraþulan þín? J.K. Rowling: Uppáhaldið mitt (fram að þessu) er „expecto patronum“ - töfraþulan sem kveður upp „Patronus“ (AHP veit ekki hvað það er á íslensku í bókunum!) Stjórnandi: Frá Emily: Kemur einhvern tíma fram kvenmaður sem kennari í sjálfsvarnarlist gegn myrkum öflum? J.K. Rowling: Emily, ég get látið það í ljós við þig (þar sem ég er með samvisku yfir því að svara svo fáum góðum spurningum) að svo MUN verða. Firebolt: Fröken Rowling, mun illska Voldemorts aukast á ný, eins og í sambandi við morð á Muggum? J.K. Rowling: Nú, skap hans hefur ekki batnað í fjarverunni, eða hvað finnst þér? Svo við getum örugglega áætlað að svarið sé já. Stjórnandi: PMM spyr: Ég er hrifin af framleiðsluvörunni. Megum við eiga von á prjónamynstrum fyrir peysur, það er fyrir okkur sem elskum að prjóna? J.K. Rowling: Prjónamynstur fyrir peysur?!!!! Nú er ég aldeilis hlessa. Ég hef bara ekki hugmynd um það . . . ég skal spyrja þá hjá Warner Bros.! Stjórnandi: Margir spyrja: Af hverju að hætta eftir sjö bækur þegar þú gætir fylgt Harry alla ævi hans? J.K. Rowling: Ég sé að fólk er visst um að hann eigi ekki eftir að deyja! Stjórnandi: Og marga langar að vita hvað þú ætlar að gera yfir hátíðarnar. J.K. Rowling: Á jólunum verð ég heima og fylgist með mági mínum elda kalkún (hann er kokkur), og á gamlárskvöld verð ég á skemmtiferðalagi! Stjórnandi:: Hvers vegna gerðir þú Quirrell að illmenni í stað Snape? J.K. Rowling: Af því að ég veit allt í sambandi við Snape og hann ætlaði sér alls ekki að setja upp vefjarhött (túrban). Stjórnandi: Narri spyr: Er einhver ástæða fyrir því að nafn Fleur þýðir „blóm hjartans“? J.K. Rowling: Ó, Narri, þú ferð nærri um þetta . . . í raun þýðir það „blóm hirðarinnar“ eins og hefðarkona. Hjarta er „coeur“ á frönsku (ég var frönskukennari, fyrirgefðu). Stjórnandi: Bob langar að vita - eða eiginlega langar ALLA að vita það: Hvenær kemur næsta bók út? J.K. Rowling: Ég veit það ekki! Það verður sennilega ekki í júlí, en þið þurfið ekki að bíða mjög lengi. Ég er að skrifa hana. Stjórnandi: Tay spyr: Ron og Hermione gefa Harry gjafir . . . gefur hann þeim einhvern tíma afmælisgjafir? J.K. Rowling: Já, Harry gefur þeim líka gjafir! En ég hef ekki enn beint athygli að afmælum þeirra - það hefur ekki verið pláss fyrir það! Firebolt: Fröken Rowling, hvaða persóna er í mestu uppáhaldi hjá þér fyrir utan Harry, og hvers vegna? J.K. Rowling: Ég held að það væri Hagrid - en ég elska líka Ron og Hermione, og ég elska að skrifa um persónur eins og Gilderoy Lockhart, Snape, Dursley-fjölskylduna . . . það er svo gaman að gera þeim ýmsa grikki. Stjórnandi: Enn einn „Harry“ spyr: Sjáum við Lupin aftur á næstunni? J.K. Rowling: Já, Harry hittir Lupin aftur. Hann er enn ein af uppáhalds persónunum mínum. Stjórnandi: Sam spyr: Mun Harry aftur ferðast um tímann? J.K. Rowling: Segi ekkert! Stjórnandi: Margir spyrja: Geturðu sagt okkur EITTHVAÐ um næstu bók? J.K. Rowling: Já . . . hún verður líklega ekki eins löng og fjórða bókin. Hún verður ógnvekjandi. Harry kemst að ýmsu sem hann hefur ekki vitað áður. Firebolt: Fröken Rowling, hefur þú einhvern tíma fundið fyrir áhrifum frá öðrum rithöfundi? J.K. Rowling: Rithöfundurinn sem ég finn mesta samkennd með er E. Nesbit. Hún skrifaði stórkostleg og fyndin ævintýri. Nimbus: Fröken Rowling, á meðan við bíðum eftir næstu bók, með hvaða bókum mælir þú sem lesefni (fyrir utan þínar)? J.K. Rowling: Góð spurning! Lesið „Clockwork“ eftir Phillip Pullman (AHP: sá sem skrifaði Gyllta áttavitann og Lúmska hnífinn) eða „Skellig“ eftir David Almond eða . . . látum okkur sjá . . . hvað sem er eftir Paul Gallico, eða „The Little White Horse“ (fyrir stelpur!) eftir Elizabeth Goudge, eða HVAÐ SEM ER! Bara haldið áfram að lesa! Stjórnandi: Þú ert núna að skrifa tvær STUTTAR bækur sem koma út í mars. Segðu okkur frá þeim. J.K. Rowling: Já, ég skrifaði „Quidditch Through the Ages“ og „Fantastic Beasts and Where To Find Them“. Allur ágóði rennur til „Comic Relief UK“ til að hjálpa þeim sem eru í hungursneyð og til að fást við önnur vandamál í Afríku. Þær koma út í mars, svo þið skuluð endilega kaupa þær!! Þið bjargið mannslífum . . . það eru góðir töfrar! Stjórnandi: Jæja, þú ert búin að svara fullt af góðum spurningum - og forðast að svara nokkrum. Fröken Rowling, þetta var skemmtilegt. Komdu endilega aftur . . . sem oftast. J.K. Rowling: Mér þykir leitt að hafa ekki getað svarað öllum spurningunum ykkar. Þakka ykkur fyrir, Nimbus og Firebolt! Stjórnandi: Góða nótt, öllsömul. |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|