| Kvikmyndirnar. Á árinu 1999 seldi Joanne Rowling risafyrirtækinu Warner Bros. kvikmyndaréttinn að Harry Potter bókunum. Rowling setti það sem skilyrði að hún fengi að vera með í ráðum við gerð myndarinnar, og að alls ekki yrði gerð teiknimynd, heldur leikin mynd. Steve Kloves, sem skrifaði m.a. handritið að The Fabulous Baker Boys, var fenginn til að skrifa handritið að fyrstu myndinni („Harry Potter og viskusteinninn“). Meistari brellumyndanna, Steven Spielberg, var talinn einna líklegastur leikstjóra til að taka að sér verkið og hann las handritið milli jóla og nýárs 1999. Í ársbyrjun 2000 birti The London Times þá frétt að Spielberg væri búinn að samþykkja að gera myndina, en það kom í ljós að fréttaritarar hlupu aðeins á sig - í febrúar var ljóst að hann ætlaði sér ekki að leikstýra henni. Spielberg segist þó vera viss um að þetta verði góð mynd sem muni njóta mikilla vinsælda. Hann hrósaði Alan Horn, forstjóra Warner Bros. fyrir þolinmæðina að bíða eftir ákvörðun sinni, og sagðist því miður hafa öðrum hnöppum að hneppa um þessar mundir. Hann sagði ekki meira um það að sinni. Um miðjan mars komu í ljós raunverulegu ástæðurnar fyrir því að Spielberg dró sig í hlé. Dagblaðið The London Sunday Express tilkynnti þann 13. mars 2000 að það hafi verið vegna „creative differences“ eða hugmyndafræðilegra árekstra á milli hans og Joanne Rowling. Hún vildi hafa mjög mikið að segja um gerð myndarinnar, og þau voru ekki sammála um hvernig ætti að gera hana. Einn talsmanna Warner sagði: „Þetta hefði ekki orðið mynd Spielbergs, heldur mynd sem hann deildi með rithöfundinum. Spielberg hefur skrautlegri hugmyndir, en ef hann ætlaði að vera sannur textanum, hefði hann þurft að sýna hennar hugmyndir, ekki sínar.“ Spielberg og Rowling voru víst heldur ekki sammála um val á leikendum. Spielberg vildi að Haley Joel Osment (litli drengurinn úr The Sixth Sense) léki Harry Potter, en Rowling krafðist þess að breskur drengur færi með aðalhlutverkið. Að því er sögusagnir herma var ástæðan fyrir því að hann lét handritið ganga áfram sú að myndin ætti að vera „sameiginleg sýn“ í stað „einkasýnar“ Spielbergs. Svo virðist sem „ameríkanísering“ Spielbergs á bókinni hafi fyllt mælinn hjá Rowling. The London Sunday Express benti á að nú væri líklegast að Brad Silberling, sem leikstýrði City of Angels myndi leikstýra myndinni. Stuttu seinna tilkynnti Chris Columbus, maðurinn sem leikstýrði Bicentennial Man, Home Alone og Mrs. Doubtfire, opinberlega að hann myndi leikstýra fyrstu Harry Potter kvikmyndinni, Harry Potter og Viskusteinninn, sem byggist á fyrstu bókinni af sjö um galdradrenginn Harry Potter. Di Bonaventura hjá Warner Bros sagði: „Þar sem bækurnar hafa fengið svo mikið fylgi hvarvetna um heiminn var mjög mikilvægt fyrir okkur að finna leikstjóra sem hefur reynslu af því að gera myndir um galdra og börn. Ég get ekki hugsað mér neinn betur til þess fallinn en Chris Columbus.“ Columbus sagði: „Frá því að ég las Harry Potter fyrst með börnunum mínum varð ég ástfanginn að þessum dásamlegu persónum og þessum heimi. Ég er ánægður og stoltur yfir því að fá tækifæri til þess að koma þessari klassísku sögu J.K. Rowling á hvíta tjaldið.“ Warner Bros. Pictures hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að fyrstu fjórum bókunum. Heyman hjá Warner Bros segir: „Chris hefur langað til að vinna með Harry Potter í næstum tvö ár. Hann hefur ótrúlega mikinn drifkraft. Ég veit að þetta verður frábær mynd.“ Columbus skrifaði handritin að „Gremlins," „Goonies" og „Young Sherlock Holmes." Síðan fór hann út í leikstjórn og hefur m.a. gert garðinn frægan með eftirtöldum myndum:: „Home Alone“ „Home Alone 2: Lost in New York" „Bicentennial Man," með Robin Williams „Stepmom," með Juliu Roberts og Susan Sarandon „Mrs. Doubtfire," með RobinWilliams Hann skrifaði einnig handritið að og leikstýrði myndinni „Nine Months“ með Julianne Moore og Hugh Grant. Kvikmyndin um Harry Potter virðist sem sagt vera í góðum höndum hjá manni sem hefur lengi sóst eftir þessu verkefni. BESTU kveðjur til Önnu Heiðu! Hún er með frábæra heimasíðu og ég fæ mikið efni þaðan! |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|