| Kvikmynd tvö- Leyniklefinn Frumsýningaragur: 15 nóvember 2002 Leikstjóri: Chris Columbus Handritshöfundur: Steven Kloves Leikarar: Daniel Radcliffe, Rupert Grint, Emma Watson, Maggie Smith, Alan Rickman, Robbie Coltrane, Fiona Shaw, Ian Hart, Richard Griffiths, John Cleese, Richard Harris, Devon Murray, Julie Walters, Zoë Wanamaker, Kenneth Branagh 01/01/02 Nýir leikarar Kenneth Branagh hefur samþykkt að leika Gilderoy Lockhart í Harry Potter og leyniklefanum, að sögn tímaritsins Variety. Branagh mun leika ljóshærðan, myndarlegan, en jafnframt óþolandi rithöfund, Gilderoy Lockhart sem hefur háar hugmyndir um sjálfan sig. Hann er mjög frægur fyrir skrif sín sem öll lýsa hetjudáðum hans. Gilderoy Lockhart tekur við stöðu kennara í Vörn gegn myrku öflunum í Hogwartsskóla og kennir Harry, Ron og Hermione (sem dýrkar hann) ásamt félögum þeirra á Gryffindorvistinni. Branagh lauk sínum hluta af kvikmyndinni fyrir miðjan febrúar 2002 og kemur svo aftur í myndatöku um miðjan apríl Eftir því sem að BBC segir hefur Shirley Henderson, sem lék í "Bridget Jones Diary", samþykkt að leika Völu væluskjóðu í myndinni um Harry Potter og leyniklefann. Hún lék síðast bestu vinkonu Bridget Jones, Jude í kvikmyndinni "Bridget Jones Diary" sem gerð var eftir skáldsögu Helen Fielding. Það hefur fengið staðfest að leikarinn Mark Williams mun leika Arthúr Weasley í kvikmyndinni um Harry Potter og Leyniklefann. Mér finnst hann virðast alveg tilvalinn í hlutverkið! Aðrir leikarar: Staðfest hefur verið að 12 ára gamall strákur, Hugh Mitchell að nafni, muni leika Colin Creevy aðdáanda Harrys í mynd #2. Julian Glover mun tala fyrir kóngulónna Aragog, sem á sér aðsetur í forboðna skóginum. Alfred Burke mun svo leika fyrrverandi skólastjóra Hogwartskóla, Armando Dippet. Sviðsmyndir: Fljúgandi bíllinn sem Harry og Ron komu á til Hogwartsskóla Húsálfurinn Dobby... Hermione að blanda eitthvað... Strákarnir, Ron og Harry, að ráðast á Lockhart niðri í Leyniklefanum... Harry niðri í Leyniklefanum! Stafirnir á veggnum...spooky! |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |