| Viðtal við Ian Hart -Þýtt af Tobbu- Þetta viðtal fann ég inni á www.youngabctales.com. Þetta er viðtal við Ian Hart, leikarann sem lék Prófessor Quirrell í myndinni um Harry Potter og viskusteininn. Lastu skáldsöguna Harry Potter og viskusteinninn áður en þér var boðið að leika í myndinni? Hefurðu lesið hinar bækurnar? Þegar ég var í prufum vegna hluverksins, hafði ég ekki lesið neina af bókunum. En um það leiti þegar ég fékk hlutverkið þá hafði ég lesið Harry Potter og viskusteininn og nokkru seinna las ég allar hinar. Ráðfærðirðu þig einhverntíman við J.K. Rowling út af hlutverkinu? Ef þú gerðir það, hvaða ráðgjöf færði hún þér? Ég hitti J.K. Rowling aðeins í 10 sekúndur þegar við lásum yfir handritið en ég veit að Robbie Coltrane og Alan Rickman ráðfærðu sig við hana. Hvernig fannst þér að leika vonda kallinn í myndinni? Varstu ekkert hræddur um að fullt af börnum myndu hata þig? Ég naut þess að leika vonda kallinn- þeir fá alltaf bestu línurnar! En til þessa hefur enginn krakki þorað að gera neitt annað en að benda á mig og hvísla! Varð þér heitt þegar þú varst með stóra vefjarhöttinn á höfðinu allan tímann? Í byrjun var ég enn með hár og vefjarhötturinn gat því orðið mjög óþægilegur, en þegar hárið á mér var rakað af varð stórbylting! Var erfitt að læra að stama fyrir hlutverkið? Talkennari sem heitir Joan Washington hjálpaði mér með stamið. Uppháalds sena margra sem nota þessa síðu (www.youngabctales.com) er þegar þú hleypur inn á stóra salinn og öskrar: “Tröll í dýflyssunni!”. Yfirliðið í stóra salnum stendur örugglega saman af 8 tökum, en fjórar myndavélar voru notaðar í hverri svo að mjög fáar tökur þurfti. Hvernig lékstu atriðið þegar Quirrell verður að ösku? Atriðið þegar Quirrell verður að ösku var að mestu gert í tölvu í San Fransisco af fyrirtæki sem er kallað Idustrial Light and magic. Hendurnar á mér voru huldar björtum skínandi blettum sem voru svo magnaðir upp í tölvu af galdramönnum og nornum tækninnar. Hvernig var að leika með Daniel, Rupert og Emmu? Hrekktu þau þig eitthvað? Daniel og Rupert stríddu hvor öðrum, förðunarmeistaranum og Robbie Coltrane- en aldrei mér- kannski vegna þess að við unnum ekki saman fyrr en í lokin. Muntu fá hlutverk í annari Harry Potter mynd þótt að prófessor Quirrell hafi dáið í þeirri fyrstu? Nei, því miður, ég verð ekki í neinni af hinum myndinum. Hélstu á alvöru græneðlu í atriðinu þegar prófessor McGonnagal kallar á Wood? Já þetta var alvöru eðla, og táin á henni var brotin! Ef þú værir í alvöru kennari í Hogwartskóla, hvað myndir þú helst vilja kenna? Ég myndi helst vilja kenna Vörn gegn myrku öflunum. Trúirðu á galdra? Vissulega. Hefurðu einhver ráð til ungra krakka sem vilja byrja að leika? Aldrei að trúa öðru en að þú getir gert þetta, og alltaf að njóta þess. Ekki byrja að leika ef að þú vilt verða rík/ur. |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|