| Viðtal við Daniel Radcliffe! -Þýtt af Önnu Heiðu- Viðtal síðan 15. nóv 2001 ~ Svipað og Mark Hamill gerði árið 1977 birtist Daníel Radcliffe fram á sjónarsviðið sem kornungur leikari með heilmikla byrði. Daníel var valinn úr hópi þúsunda vongóðra leikenda til að leika aðalhlutverkið í myndinni um Harry Potter og viskusteininn sem gerð er eftir samnefndri sögu J.K. Rowling. Með stuttan feril að baki sem aukaleikari í "Klæðskeranum frá Panama" skýst Daníel upp á stjörnuhimininn í Hollywood sem nýstirni. En hann verður eflaust á himni um langan tíma því hann er orðinn holdgervingur uppáhalds galdradrengsins frá Hogwartskóla. Þegar Harry Potter kemur til Hogwartskóla þekkja allir nafn hans en enginn veit nokkuð um hann. Aðspurður að því hvort hið sama gildi um hann sjálfan svarar Daníel: „Ég held að allir finni samkennd með Harry á einn eða annan hátt. Ég finn samkennd með Harry á ýmsan hátt en ekki þennan. Ég er trygglyndur, mér finnst gaman að vera innan um fullt af fólki en mér finnst líka gott að vera aleinn. Ég er forvitinn, ég óttast ekki að svara fyrir mig og segja sannfæringu mína." Þegar hann fékk að vita að hann hefði verið valinn til að leika aðalhlutverkið varð Radcliffe orðlaus. „Ég grét. Ég var svo hamingjusamur, það var stórkostlegt. Engin orð geta lýst því hvernig mér leið. Ég var inni á baðherbergi á efri hæðinni. Ég heyrði símann hringja niðri og pabbi fór niður til að svara. Ég var eiginlega viss um að þetta væri framleiðandinn en ég hélt að símtalið væri til að segja mér að ég hefði ekki verið valinn. En þá kom pabbi upp og sagði mér fréttirnar og ég sat bara eins og klessa í smátíma. Svo vaknaði ég klukkan tvö um nóttina og hélt að mig hefði verið að dreyma." Daníel Radcliffe þekkti vel til Harry Potter bókanna. „Ég las fyrstu bókina þegar ég var átta eða níu ára. Ég hafði eiginlega aldrei verið hrifinn af bókum því mér fannst erfitt að sitja kyrr og einbeita mér að bók. Vinir mínir voru brjálaðir í bækurnar. Ég hafði gaman af þeim en ég var ekki með þær á heilanum. En svo fékk ég hlutverkið og eftir það var ég fallinn fyrir Harry." Eins og yfirleitt gerist við myndatökur fer leikari í gegnum súrt og sætt. Daníel fór ekki varhluta af því en segir að lífsreynslan hafi að mestu verið jákvæð, sérstaklega samstarfið við Chris Columbus. „Það allra besta var að vinna með Chris. Hann hefur góð áhrif á fólk, hann er stórkostlegur og rosalega fyndinn. Ég er búinn að læra mikið af honum. Ekki bara um kvikmyndagerð heldur líka að fást við lífið og tilveruna. Ég veit ekki hvort hann viti hversu mikið hann hefur kennt mér." Og hvað með hið súra? „Ef ég yrði að nefna eitthvað þá eru það eiginhandaráritanirnar. Ekki það að gefa þær, heldur er nafnið mitt svo langt. Ég þarf að reyna að finna upp styttri áritun." Nú skrifar hann „Dan R." Ekki þarf að taka það fram að Daníel gaf tugi eigihandaráritana á frumsýningunni í Lundúnum í lok október. Þegar hann sá myndina varð Daníel aftur tilfinningasamur. „Ég var virkilega, virkilega ánægður. Ég þoli ekki að sjá sjálfan mig. En ég gat samt notið þess að sjá myndina vegna leikstjórnarinnar, og auðvitað sögunnar og handritsins, og sérstaklega hinna leikaranna. Allt þetta varð til þess að ég gat hallað mér aftur og notið hennar eins og ég væri ekki þarna. Og ég fór aftur að gráta." En áður en nokkur nær að leggja fram aðra spurningu kallar Daníel: "Ég er samt enginn aumingi! EKKI PRENTA ÞETTA!" Næstu árin mun Daníel þurfa að fást við frægðina. Hann hefur samþykkt að leika í að minnsta kosti einni mynd í viðbót, "Harry Potter og leyniklefanum," en tökur eru þegar hafnar á þeirri mynd. Aðspurður að því hvort myndin hafi fengið meiri athygli í Lundúnum en í Bandaríkjunum segir Daníel: „Hér er allt miklu umsvifameira. Ég fór í Empire State Building í fyrradag og þar var strákur fyrir framan okkur, ég veit ekki hvað hann var gamall. Hann þekkti mig en var ekki viss hvaðan. Hann starði bara stöðugt á mig en tókst ekki að koma mér fyrir sig. Ég nýt þessa, kennararnir mínir segja að ég hafi alltaf verið athyglissjúkur." Han talar lágt og feimnislega en Daníel Radcliffe mun komast í raðir þekktra Hollywood-leikara þrátt fyrir það. Eins og við munum greinilega eftir Mark Hamill í hlutverki Loga geimgengils og Michael Keaton sem Batman, þá verður Daníel Radcliffe ávallt í huga okkar litli galdradrengurinn sem gegnir nafninu Harry Potter. |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|