Hogwartsskóli
Fréttir og viðtöl
Kvikmyndin
Ýmislegt
Bækurnar
Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002
Gestabók
Heim
Æviferill J.K Rowling
Linkar
Á myndunum getur þú....
Þekkirðu norn/galdramann?
Quidditch
Persónurnar
Hvernig veistu að vinur þinn eða vinkona er galdranorn eða galdramaður? 

Vinur þinn eða vinkona er alveg örugglega galramaður eða norn, ef að: 

1.) Vinur þinn á uglu sem að stundum hverfur vikum saman.

2.) Á veturna, fer vinur þinn í heimavistarskóla. En þegar þú spyrð hann hvar skólinn sé eða hvað hann heiti, er eins og að hann missi allt í einu heyrnina.

3.) Þegar þú gistir hjá vini þínum, talar hann alltaf uppúr svefni einhver undarleg orð eins og "Quidditch" "lumos" og "Voldemort"

4.) Vinur þinn er alltaf að rausa um einhverja "mugga" og er oft að kvarta yfir að ljósmyndirnar hreifi sig ekki.

5.) Þegar vinur þinn kemur heim úr skólanum í sumarfrí,virðist honum leiðast alveg herfilega.

6.) Þegar þú sýnir vini þínum nýju uppþvottavélina sem að foreldrar þínir keyptu, muldrar hann: "skrítið hvernig muggarnir geta bjargað sér".

7.) Eitt sinn stóðuð þú og vinur þinn fyrir framan bíó og ykkur langaði á bannaða mynd. Þá dró vinur þinn fram skikkju sem að hann setti yfir ykkur bæði/báða, og þið löbbuðu bara framhjá miðasölunni og inn í salinn. Enginn virtist taka eftir ykkur.

8.) Í hvert skipti sem að þú og vinur þinn farið í bíl eða lest, tautar vinur þinn alltaf eitthvað eins og: "seinvirk þessi muggafarartæki".

9.) Þegar þú ert veik/veikur blandar vinur þinn helling af einhverju ógeði (úr stóra koffortinu sínu) saman í stóran pott sem stendur á miðju gólfinu yfir blaum loga. Eftir smástund lætur hann þig drekka eitthvað fjólublátt. Þér líður strax miklu betur.
Hosted by www.Geocities.ws

1