| Æviferill Rowling Anna Heiða Pálsdóttir fann ágætis yfirlit yfir lífsferil J. K. Rowling á Bookmagazine.com og þýddi það. 1960 Faðir Joanne, Peter, vélamaður hjá Rolls Royce í Bristol, kynnist móður hennar, Anne (frönsk í aðra ættina og skosk í hina) sem vann á rannsóknarstofu í lest á leiðinni frá KING'S CROSS brautarstöðinni í London. Hann biður hennar seinna um borð í annarri lest. 1965 Joanne Kathleen Rowling fæðist 31. júlí á Chipping Sodbury sjúkrahúsinu í Gloucestershire. 1971 Þegar Rowling er sex ára skrifar hún fyrstu söguna sína - um kanínu sem fær mislinga. Fjölskyldan flytur frá Yate til Winterbourne, skammt frá Bristol, þar sem Joanne og Di systir hennar leika við nágrannabörnin, m.a. systkini með eftirnafnið POTTER. Ian Potter gerir alls konar prakkarastrik, setur snigla á matardiska og útbýr gildrur á hjálpardekkin á hjóli systur sinnar, Vikkiar. Hann fær jafnvel Jo, Di og Vikki til að hlaupa í gegnum blauta steypu. Stelpurnar hafa yndi af því að klæða sig eins og GALDRAKONUR. (Ian er núna tæknimaður í Yate og Vikki er sölustjóri hjá tölvufyrirtæki). 1974 Fjölskyldan flytur til Tutshill, nærri Chepstow í Wales. Rowling leiðist í nýja skólanum en skemmtir sér við að lesa E. Nesbit, Noel Streatfield, Paul Gallico's Manxmouse, Narníu-bækur C.S. Lewis' og Litla, hvíta hestinn eftir Elizabeth Goudge. Hún skrifar sjálf sögu um sjö demanta með álög. 1976 Jo byrjar í Wyedean Comprehensive, sem er ekki einkaskóli en það er skóli skammt frá sem er með heimavistir er nefnast Armstrong, Bannister, Chichester og Hillary. Elsti og besti trúnaðarvinur hennar er Sean Harris (fyrirmyndin að RON WEASLEY). Hún segir vinum sínum sögur í hádegishléinu. Hún lýsir sjálfri sér á þessum tíma sem stelpu með búllukinnar og gleraugu (fyrirmyndin að HERMIONE) og er með lítið sjálfstraust þar til hún fær sér snertilinsur. Hún gerist mikill aðdáandi Jane Austen. 1980 Móðir Jo greinist með MS (Multiple Sclerosis). 1982 Joanne Rowling er útnefnd „Head Girl“ eða fyrirmyndarnemandi í Wyedean Comprehensive. 1983 Fer í University of Exeter til að læra frönsku og klassískar bókmenntir. Hefur nú hafið í alvöru að safna undarlegum nöfnum. 1985 Er aðstoðarkennari í París í eitt ár sem hluti af prófgráðu. 1987 Útskrifast, vinnur í smátíma hjá Amnesty International og deilir íbúð með vini í Clapham í suðurhluta London. Skrifar í matarhléum á krám og kaffihúsum. Hún byrjar á tveimur skáldsögum fyrir fullorðna. 1988 Vinnur sem ritari í Manchester en er illa við starfið. Notar tímann til að vélrita sögurnar á tölvu. 1990 Joanne er í lest á milli Manchester og KING'S CROSS í London þegar persóna Harry Potter stígur fullsköpuð inn í huga hennar og hún fer að skapa heiminn í Hogwart-galdraskólanum. Því miður hefur hún engan penna eða pappír á sér svo hún leggur þetta allt á minnið. 1990 Móðir hennar deyr 45 ára að aldri úr MS. 1991 Rowling er nú orðin 26 ára og fer til Oporto í Portúgal að kenna ensku. Skrifar tíu mismunandi útgáfur af fyrsta kafla Harry Potter og viskusteinsins. Finnur upp nöfnin á heimavistunum í Hogwart og skrifar þau á ælupoka í flugvél. 1992 Giftist portúgölskum sjónvarpsfréttamanni. 1993 Eignast dótturina Jessicu sem hún nefnir í höfuðið á rithöfundinum Jessicu Mitford, manneskju sem hún dáist mikið að. 1993 Skilur við mann sinn og flytur heim til Bretlands með dótturina, til Edinborgar á Skotlandi þar sem systir hennar, Di, býr, með ferðatösku hálffulla af Harry Potter sögum. Di, sem áður var hjúkrunarkona, er nú komin í laganám. Mánuði eftir endurkomu Joanne flytur forsætisráðherra Bretlands, John Major, ræðu um að einstæðar mæður séu verst stöddu einstaklingar þjóðfélagsins. 1994 Segir Joanne Di systur sinni söguna af Harry Potter. Di er sem betur fer hrifin af henni. Rowling er föst í slæmri aðstöðu sem margir fátækir þekkja - hún býr í tveggja herbergja íbúð, fær ekki pláss á ríkisreknu dagheimili fyrir Jessicu og hefur ekki efni á einkapössun nema hún hafi vinnu. Hún gengur í gegnum þunglyndistímabil (sem vekur hjá henni hugmyndina um „DEMENTORS“ eða vitsugurnar sem sjúga góðar minningar úr mennskum og setja þá á barm örvæntingar). Henni tekst að lifa af 69 pundum (um 8.400 kr.) á viku og sleppir úr máltíðum til að safna peningum fyrir Jessicu. Skrifar Harry Potter á minnisblöð í kaffihúsum í Edinborg og sötrar expresso-kaffi á meðan Jessica sefur í kerrunni sinni. Á kvöldin skrifar hún líka. „Ég skrifaði söguna fyrir sjálfa mig.“ 1995 Hún lýkur bókinni og vélritar handritið á ritvél sem hún kaupir á 5.000 kr. Hún hefur ekki efni á að láta ljósrita handritið svo hún vélritar það allt upp á nýtt. Fer á bókasafnið og flettir upp nöfnum á umboðsmönnum og útgefendum. Sendir handrit til tveggja umboðsmanna og eins útgefanda. 1996 Vinnur sem enskukennari á meðan hún bíður eftir svari. Umboðsmaðurinn Christopher Little finnur rétta útgefandann, Bloomsbury. 1997 Í febrúar fær hún styrk frá skoska listamannasjóðnum upp á tæpa milljón ÍSK. Hún kaupir sér tölvu til að ljúka annarri bókinni. Í júní 1997 kemur Harry Potter og viskusteinninn út í Bretlandi. Í september er bókin boðin út í Bandaríkjunum og útgáfufyrirtæki kaupir réttinn á 105.000 dollara (rúmar 7 milljónir), en það er stærri upphæð en nokkur annar barnabókahöfundur hefur fengið. Rowling kaupir sér jakka á 18.000 ísl. kr. til að vera í þegar hún veitir viðtöl. 1998 Harry Potter og leyniklefinn kemur út í Bretlandi í júlí. 1999 Harry Potter og fanginn frá Azkaban kemur út í Bretlandi í júlí og slær Hannibal eftir Thomas Harris úr fyrsta sæti metsölulistans. The New York Times er með Harry Potter bækurnar í fyrstu 3 sætum metsölulistans - það hefur aldrei gerst áður með einn rithöfund. Warner Bros. kaupir kvikmyndaréttinn að fyrstu tveimur bókunum. Rowling krefst þess að þær verði ekki teiknimyndir og að hún fái að samþykkja handritið. Hún segist hlakka til að sjá Quidditch-keppni á tjaldinu og vonar að Robbie Coltrane muni leika Hagrid. Mattel fyrirtækið (sem framleiðir Barbie-dúkkurnar) kaupir framleiðsluréttinn að Harry Potter leikföngum. 2000 Rowling kemst í 24. sæti lista Forbes („Annual Celebrity 100 List“) yfir tekjuhæstu stjörnurnar, á eftir Michael Jordan og á undan Cher, og er ofar öðrum frægum rithöfundum eins og Grisham, Koontz og Chichton. Steve Kloves, handritshöfundur The Fabulous Baker Boys byrjar að skrifa kvikmyndahandritið. Í mars hafa 30 milljónir eintaka selst af bókum Rowling á 35 tungumálum. Í júlí kemur fjórða bókin (Harry Potter og eldbikarinn) út beggja megin Atlantshafsins, í Bretlandi og Bandaríkjunum. 2001 Fyrsta kvikmyndin um Harry Potter frumsýnd í nóvember. 2002 Rowling giftist svæfingarlækninum Dr. Neil Murray í leynilegri athöfn í Skotlandi. |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|