| Harry Potter og Fönixreglan Höfundur: JK Rowling Titillinn verður líklega: HARRY POTTER OG FÖNIXREGLAN („Harry Potter and the Order of the Phoenix"). Rowling hefur nefnt það oftar en einu sinni m.a. í heimsókn til Bandaríkjanna í október 2000. Við komumst að því af hverju sumir galdramenn verða draugar og aðrir ekki. Bókin er mun styttri en fjórða bókin. Harry verður 15 ára. Rowling sagði í viðtali að við munum kynnast stöðum sem aðeins hafa verið nefndir í fyrri bókum. Það getur verið að við kynnumst bænum sem Lily og James bjuggu í, Godric's Hollow. Lupin prófessor ásamt öðrum persónum kemur aftur til sögunnar. Rowling segir að við hittum margar horfnar persónur á ný. Rowling segir að við sjáum hvort Percy haldi með fjölskyldu sinni. Ginny Weasley gegnir mun stærra hlutverki en áður. Nú getur kvenkyns kennari í sjálfsvarnarlist gegn myrkum öflum komið fram á sjónarsviðið. Við kynnumst frekar bakgrunni Lily Potter. Við fáum að vita ástæðuna fyrir dauða Lily og James (stóðu þau ekki í vegi fyrir heimsyfirráðum Voldemorts?) Hermione verður umsjónarmaður. Rowling segir að ein af persónunum, „ein af aðdáendum Harrys“ muni deyja. Rowling segir: „Í fimmtu bókinni förum við á nýjan stað sem við höfum aldrei áður séð, í töfraveröld." Hún segir líka: „Það sem mér finnst mikilvægt er að Dumbledore segir að maður verði að velja á milli þess sem er rétt og þess sem er auðvelt. Á því byggjast næstu þrjár bækurnar. Í öllum þeirra þarf að velja eitthvað, því það sem er auðvelt er ekki alltaf rétt." Rowling sagði við annað tækifæri: „Þið fáið að sjá frú Arabellu Figg í fimmtu bókinni og komast að öllu um hana." Sú „Arabella Figg" sem Dumbledore vísar til í bókarlok fjórðu bókar er sú sama Arabella Figg sem passaði Harry fyrir Dursley hjónin í fyrstu bókinni. Svo sagði hún: „Fimmta bókin er ógnvekjandi. Harry kemst að ýmsu sem hann hefur ekki rekist á hingað til." Og: „Dursley fjölskyldan er í fimmtu bókinni og henni fylgja hlutir sem fólk átti alls ekki von á." Einnig: „Í fimmtu bókinni verður Harry að komast að því nákvæmlega hvað dauðinn táknar." Textinn hér að ofan er fenginn af HP á Íslandi, heimasíðu Önnu Heiðu Pálsdóttur.. |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|
| ?? |