| Harry Potter og Fanginn frá Askaban Höfundur: J.K. Rowling Í upphafi bókarinnar fáum við að vita að vel þekktur glæpamaður, Sirius Black, sem meira að segja Muggarnir þekkja, hafi sloppið úr Azkaban fangelsinu. Og það er einmitt um það leyti sem Harry Potter (nú 13 ára) á að hefja þriðja árið sitt við Hogwartskóla. Hræðilegir fangaverðir Azkaban-fangelsisins sem ganga undir nafninu Vitsugurnar („Dementors“) halda vörð um allar inngönguleiðir í Hogwarts - sýnilega í því skyni að halda Síríusi Black frá skólanum. En Harry hræðist Vitsugurnar jafnmikið og flóttafangann - það líður yfir hann í hvert skipti sem hann kemur nálægt þeim. Harry líkar svo illa við áhrifin sem Vitsugurnar hafa á hann að hann leitar aðstoðar Lupin prófessors, nýja kennarans í sjálfsvarnarlist gegn myrkum öflum, sem hjálpar Harry að verjast þessum óhugnalegu hettuklæddu vitsugum. Í þessari bók er að finna sama húmorinn, vel úthugsuðu fléttuna og frábæru persónusköpunina eins og í hinum tveimur, en nú kynnir Rowling meiri sálfræðilega flækju til sögunnar, þar sem Harry þarf að komast yfir dauða foreldra sinna. Af þessum sökum er sagan svolítið þroskaðari og vandaðari en fyrri sögurnar tvær. - Þessi bók er hreint meistaraverk! Hún er svo úthugsuð að maður getur ekki annað en dáðst að Rowling! Textinn hér að ofan er fenginn af HP á Íslandi, heimasíðu Önnu Heiðu Pálsdóttur og eilítið breyttur |
![]() |
| Þorbjörg Þorvaldsdóttir 2002 |
|
![]() |