~:Lubbi Junior:~
~:Myndaalbúm:~
~:Puppy Mills:~
~:Senda E-mail:~
~:Skrifa í Gestabók:~
~:Skoða Gestabók:~
Hann Lubbi Junior Þorgerðarson fæddist í Hafnarfirði sunnudaginn 29. júní 2003 og var einn af 4 hvolpum. Mamma hans hét Snotra og pabbi hans heitir Sóldán, en núna er ég (Gogga) mamma hans. Hann er skírður eftir afa sínum en hann hét líka Lubbi og var gamli hundurinn minn.
Hann er hreinræktaður Golden Retriever af Skógavörðukyni. Hann er ekki ættbókarfærður hjá Hundaræktunarfélaginu en þeir eru bara með Nollarkyn. Nollar-hundar eru meiri sýningarhundar og eru næstum því hvítir. Ekki Lubbi minn! =) Hann er með þetta líka æðislega veiðieðli í sér, enda eru Golden veiðihundar, og eru GULL á litinn.
Þar sem hann er svona mikill veiðihundur í sér, finnst honum al-skemmtilegast að fara í sækja-leik. Það sem verst er, er að hann vill aldrei sleppa leikfanginu sínu eftir að hafa sótt það og vill fara í toga-leik!
Honum finnst ofboðslega gaman að fara í göngutúra, upp í Hamar, upp í dal, og svo líka bara það að fá að hlaupa laus á fótboltavellinum.
Aðal-uppáhaldið hans eru samt sokkar! Hann elskar sokka og stelst í þá eins oft og hann getur! Þessvegna köllum við hann stundum Sokkakræki! Hann elskar allan mat, nema akkurat matinn sinn! Hann hámar í sig kál og gúrku af bestu lyst (ég veit, hann getur verið svolítið skrýtinn) og svo finnst honum hundanammi auðvitað mjög gott, helst Snausages eða Jerky Treats.
Yfir höfuð er hann Lubbi bara æðislegur og yndislegur og verður í mínum huga alltaf sætastur, flottastur og bestastur! :)
Flags courtesy of ITA´s
Flags of All Countries used with permission.

Um Lubba Junior