Stutt Æviágrip Okkar

Jóna Dís Steindórsdóttir

Ég er 29 ára og frá Reykjavík, nánar tiltekið Breiðholtinu. Ég útskrifaðist frá Verslunarskólanum árið 1991 sem, að mér finnst, er óralangt síðan. Stuttu eftir það fór ég til Spánar, til Sevilla, í spænskuskóla, mig hafði alltaf langað til að læra spænskuna. Ég var þar í skólanum í 4 mán. og fór svo m.a. að ferðast um í aðra 4 mán. Árið á eftir fór ég aftur til Sevilla og var þá í 3 mán. Þetta er alveg yndisleg borg og mikið af áhugaverðum stöðum að heimsækja. Ég ákvað svo ári seinna að drífa mig í Háskóla Íslands í spænskunám, tók eitt af þremur árunum í háskólanum í Sevilla (1996-97). Það tókst ágætlega en er ekki búið enn, ég er að vinna í BA ritgerðinni núna. Síðan lá leiðin í flugfreyjuna hjá Air Atlanta þar sem ég var að fljúga frá Madrid til Kanarí og Kúbu. Við Ingi kynntumst í Las Palmas (Kanarí) í apríl 1998 og höfum verið saman síðan. Einnig var flogið á aðra áfangastaði frá Madrid, eins og t.d. til Moskvu, Tokyo, Rio de Janeiro, Buenos Aires, Jóhannesarborgar, New York, Miami o.s.frv. þannig að
þetta var/er góð leið til að ferðast um heiminn og skoða hann, sem er
eitt af aðal áhugamálum okkar beggja. Við Ingi fórum svo til Tulsa í
ágúst 1999 þar sem hann fór í
Spartan School of Aeronautics að læra
flugvirkjann og ég náði mér í skírteini í ferðamálafræði og fór svo í
tölvufræði í TCC (Tulsa Community College). Þar útskrifaðist ég með
skírteini sem System Support Technician (nokkurskonar kerfisfræði)
og í Web Graphics og Web Site Management. Ég hef ekkert unnið við
tölvur að ráði en langar að læra meira og kannski ná mér í MCSE gráðu
(Microsoft Certified Systems Engineer). Eins og er (í mars 2001) er ég
komin aftur í vinnu hjá Air Atlanta í Madrid að fljúga til Kúbu,Jóhannes-
arborgar og Kanaríeyja (reyndar þegar þetta er skrifað þá sit
ég uppi
á hótelherbergi í La Habana á Kúbu). Eins og Ingi segir hér að neðan,
þá ætlum við okkur að búa erlendis næstu árin en alltaf saknar maður
samt litlu eyjunnar í norðri og því góða sem hún hefur uppá að bjóða,
samt er einum of kalt þar fyrir minn smekk, og of dimmt á veturna.

Mynd sem teiknuð var af mér úti á götu í Tokyo árið 1998. Ekkert spes mynd, ég lít út eins og fangavörður í Rússnesku fangelsi. Nafn mitt er á japönsku hægra megin.

 

 

Ingi Ingason

 

 

Ég er 31s árs og var að klára flugvirkjun í U.S.A, betra seint en aldrei. Síðustu 7 ár hef ég ferðast og búið út um allan heim. Lengst var ég í Madrid á Spáni en ég hef líka búið í Luxemburg, Kanarí- eyjum, Bandaríkjunum og Ecuador. Reyndar hef ég haft það áhugamál
síðustu árin að ferðast og skoða heiminn og hef ég eytt samtals um einu
ári í Suður- og Mið-Ameríku og farið til næstum allra landa þar. Mest ferð-
aðist ég með bakpokann minn á "budget" en sá ferðamáti finnst mér
skemmtilegastur, enda kynnist maður fólkinu í landinu þannig en ekki
bara fyrirfram völdum ferðamannastöðum í vernduðu umhverfi fararstjóra.
Eftir eins og hálfs árs dvöl í Bandaríkjunum hef ég ákveðið að aldrei eigi
ég eftir að búa þar, mér finnst þetta allt annað en heillandi þjóðfélag, þó
svo þeim finnist það kannski sjálfum könunum. Núna er ég á leiðinni til
Saudi Arabíu, nánar tiltekið
til Jeddah að fara að vinna fyrir Air Atlanta.
Eftir að hafa búið þetta lengi erlendis þá býst ég ekki við því að flytja aftur
til litlu eyjunnar í norðri, allavega ekki næstu árin. Mér finnst ég enn eiga
eftir að skoða svo
mikið, jörðin er stór og hefur uppá svo margt ólíkt og
framandi að bjóða og ég hef brennandi áhuga á að kynnast þessum ólíku
menningarheimum.
Mynd teiknuð af mér einnig í Tokyo, það mætti halda að hún hafi verið teiknuð árið 1978 en ekki 1998. Nafnið er á japönsku vinstra megin.

 

Heim

 

 

Byrjun á síðu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 









Hosted by www.Geocities.ws

1