|
Heim
Syrian,Hamstrar
Ræktun
Hamstra
Sjaldgæfir
Hamstrar Á Íslandi
Tungumál
Hamstranna
Mynd
Vikunnar
Spurning
vikunnar
Matseðill
Stroku
Hamstrar
Stjörnu
Spá
Molar
um Hamstra
Umhirða
Hamstra
Um
ÍSLENSKA HAMSTRA
Hamstra
Vörur
Hamstra
Fæðingar
|
|
Syrian
Hamstrar.
Á þessari síðu er fjallað
um Syrian hamstra og allt sem viðkemur þeim, þ.e. litir feldir og
tegundir. Syrian hamstrar eru einu hamstrarnir ræktaðir hjá ÍSLENSKUM
HÖMSTRUM en aðrar tegundir
af hömstrum eru "dwarf" (dverg) og chinchilla og einnig
Kínverskir.
Litir
Upprunalegi
liturinn af syrian Hamstrinum úti í náttúrunni er gullinn brúnn, en
þar sem Syrian Hamstrar hafa verið ræktaðir í gegnum árin hafa
margir litir komið fram.
Sumir litir eru kallaðir Agouti á meðan aðrir
eru kallaðir Self. Agouti þýðir að
hamsturinn er með upprunalegu náttúru merki á sér, það er að
liturinn er dekkri í rótunum (undir litur) en ofan á, maginn er hvítur
og hamsturinn hefur dekkri hökulit sem ná frá enda kjálkans og og upp
að eyranu þeð hvítann hálfhring bakvið.
Self litaðir hamstrar eru í sama lit um allan laíkamann (bak og maga)
með engann hökulit - þeir hafa venjulega hvíta höku rönd og geta líka
verið með hvítann blett á maga eða brjósti. Með því að blanda
saman mismunandi litum er möguleiki á að rækta aðrar útgáfur af
Agouti og Self litum.

ATH:
Þessar 2 myndir eru af Gull hamstri og Sand rjóma lituðum gull hamstri.
Gull hamsturinn er á þeirri mynd sem "Agouti" Syrian stendur
á, en hinn hamsturinn er aðeins eitt afbrigði sem ræktað hefur verið
út frá gullhamstrinum en er ekki sá upprunalegi eins og svo margir.
Hérna eru myndir og lýsingar af
agouti hömstrum.
|
Gull: Upprunalegi Agouti hamstra liturinn.
Hamsturinn hefur hefur ríkann brúnann feld, dökk gráan undir
lit, fílabeins litaðan maga, svartann hökulit, svört augu og
grá eyru. Ljós Gull hamstrar eru brúnir á lit með dökk gráan
undir lit, fílabeins litaðann maga, svartann hökulit, svört
auguog grá eyru.
|
|
Kanill: Kanill litaði hamsturinn er með ljósann
engifer litaðann feld með bláann undir lit, fílabeins litaðann
maga, brúnann hökulit, rauð augu og húð lituð eyru.
|
|
Rið: Rið hamsturinn er með engifer lit í
feldum ásamt gráum undir lit, fílabeins litaðann maga, Brúnan
hökulit, svört augu og grá eyru.
|
|
Dökk Grár: Dökk grái hamsturinn er með gráan
feld, fílabeins litaðann maga, svartann hökulit,svört augu og
grá eyru. Ekki ætti að rækta 2 Dökk Gráa hamstra saman.
|
|
Ljós Grár: Ljós grái hamsturinn hefur gráan
feld með dökk gráum undir lit, fílabeins litaðann maga, dökk
gráan hökulit, svört augu og grá eyru. Hann er auðveldlega þekktur
í sundur frá Dökk Gráa hamstrinum af rjóma yfirbragðinu á
andlitinu og vöðvunum.
|
|
Silvur Grár: Sannur Silvur grár hamstur (með 2
silvur hamstra gen) hefur silvur gráan feld með mið gráum
undir lit, fílabeins litað andlit, gráan hökulit, svört augu
og dökk grá eyru.
|
|
Gulur: Guli hamsturinn hefur gulann feld með
rjóma undir lit og feldurinn er þykktur í gegn með svörtum hárum.
Hamsturinn hefur fílabeins litaðann maga, svartann hökulit, svört
augu og grá eyru.
|
Hér eru myndir og lýsingar af
self hömstrum.
|
Svört augu, Rjóma: Svart augan
Rjóma hamsturinn er self lita hamstur með sand rjóma litaðann
feld, svört augu og dökk grá eyru.
|
|
Hvítur: Hvíti hamsturinn er næstum því albinói
og hefur alveg hvítann feld og svört augu.
|
|
Svartur: Svarti hamsturinn er með þykkan
svartan feld ( þó hafa sumir brúnan eða bláan lit í þeim),
svört eyru og augu. Hamsturinn er með hvíta línu undir hökunni
og hvítt utan um fæturna. Í sumum löndum kalla ræktendur
svarta hamsturinn sem "Evrópska bangsa hamsturinn"
Þessi hamstur er sjaldgæfur á Íslandi
|
|
Þvottur:
Þvotta genið lætur gráan "þvott" yfir alla liti sem
það er sameinað við, þ.e. sameinað með Svört augu, Rjóma
kemur út Sable
og sameinað með Gullnum hamstri þá keumr út Þvotta
Gullhmstru (mynd) þegar gullni liturinn er grárri og fílabeins
liturinn breytist í gráan.
|
Munstur
Hér er listi yfir munstur sem hamstrar bera.
|
Rönd (Banded): Röndóttir hamstrar hafa rönd
af hvítum feldi yfir mitt bakið. Þessi rönd er stundum ókláruð,
skökk eða vera með bletti af litum. maginn á röndóttum hömstrum
er hvítur.
|
|
Ríkjandi blettir (Dominating Spot): Hamstrar með
ríkjandi bletti eru með hvíta bletti þó að stundum eru
svo margir blettir eða blettirnir eru svo stórir að ekki mikið
hvítt sést. Hamstrar með ríkjandi bletti hefur venjulega hvíta
blesu frá nefinu og upp að enninu. Maginn á Hömstrum með ríkjandi
bletti er hvítur.
|
|
Roan: Roan Hamstrar eru hvítir hamstrar með
lituð hár sem eru þykkt í gegnum feldinn. Stundum getur þessi
þykking verið það mikil að ekki mikið hvítt sést, á meðan
á sumum hömstrum þá koma bara hár í gegn á höfðinu. Sama
genið getur líka búið til "hvít maga" hamstra þar
sem hamsturinn hefur hreinann hvítann maga, þ.e. Hvít maga Gull
Hamstur. Bæði Roan og "hvít maga" hamstrar eru búnir
til úr Anophthalmic geninu, og 2 hamstrar sem hafa þetta gen ættu
ekki að vera ræktaðir saman því að það getur búið til
augn lausa unga.
|
Piebald: Piebald Hamstrar eru taldir útdauðir.
Þeir eru líkir hömstrunum með ríkjandi bletti, nema að Piebald hefur
bletti líka á maganum sem á bakinu.
Feldir
Það eru 5 mismunandi feldir sem Syrian hamstrar hafa.
Venjulegur stutt hærður, Síð hærður, Rex og Hárlausir. (Allir þessir
feldir nema hárlausi feldurinn eru æskilegir og eru ræktaðir hjá ÍSLENSKUM
HÖMSTRUM)
|
Stutt Hærðir: Þetta er venjulegi feldurinn sem
Syrian Hamstrar hafa og feldurinn stuttur allstaðar á líkamanum.
|
|
Síð Hærðir: Kvennkyns síð hærðir
hamstrar hafa síðari feld en venjulega feldinn og hafa lufsur af
feldi við bottninn á þeim. En Karlkyns síð hærðir hamstrar
hafa alvöru síðann feld. þeir hafa langar lufsur um mjaðmirnar,
og sítt pils um neðri hluta líkamanns eða þykkann feld yfir
allt. Síð hærði Syrian hamsturinn er stundum kallaður
"Bangsa hamsturinn".
|
|
Rex: Þetta gen veldur því að feldurinn verður
bylgjóttur og hárin liftast og stutt hærðir Rex er plús í
yfirbragði með flauels feld. Síð hærði Rex (sérstaklega
karlkyns) hafa úfið yfirbragð. Rex hamstrar hafa líka krulluð
veiði hár.
|
|
Satin: Satin genið gefur feldinum
glansandi yfirbragð. þetta er stundum mjög erfitt að sjá á
hvítum, Sable eða svörtum hömstrum. 2 Satin Hamstra ætti ekki
að rækta saman annars verða ungarnir extra glansandi og hafa of
þunnan feld.
|
|
Hárlaus: Þetta gen veldur því að hamstrarnir
hafa engin hár, þó gætu þeir haft krulluð veiði hár.
|
Ef einhjverjar spurningar lyggja fyrir, viljið fá
stærri útgáfur að myndunum hér á síðunni eða þið hafið áhuga
á að eingast eða fræðast um svona hamstra hafið
samband við [email protected]
|
|