Ólafur þórarinsson

Undir bláhimni (Video)

Undir bláhimni blíðsumars nætur
berst í arma mér rósfagra mey.
Meðan döggin á grasinu grætur
gárast tjörnin af suðrænum þey.

Ég var snortinn af yndisleik þínum
ástarþráin er vonunum felld.
Þú ert ljósblik á lífshimni mínum
þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld.

Ég vil dansa við þig meðan dunar
þetta draumblíða lag sem ég ann.
Meðan fjörið í æðunum funar
og af fögnuði hjarta mitt brann.

$
Og svo dönsum við dátt þá er gaman
meðan dagur í austrinu rís.
Og svo leiðumst við syngjandi saman
út í sumarsins paradís.

Instrumental

dal $egno al fine

(Coda:)

Já út í sumarsins paradís

Hansis Schlagerseiten