Trjágróður við sjávarsíðuna

Í tímaritunu 'Við ræktum', gefið út af Rit og rækt, byrtist grein eftir Auði I. Ottesen, sem fjallaði um flokkun trjágróðurs við sjávarsíðuna eftir harðgerði. Listinn sem hún birti er hér, með viðbættum myndum og stuttri lýsingu af trjánum.
Tilgangurinn er eingöngu að fá yfirlit yfir þau tré og runna sem mögulegt er að vaxi við sjávarsíðuna.


Trjá og runnategundir sem vaxa áfallalaust við erfiðar aðstæður
Trjá og runnategundir sem þurfa skýlingar fyrir skæðum vindáttum
Trjá og runnategundir sem þrífast best í nokkru skjóli
Trjá og runnategundir sem þurfa skjól
Trjá og runnategnundir sem hafa þrifist illa

Trjá og runnategundir sem þrífast best í nokkru skjóli

Alnus sinuata Sitkaelri
Harðgert, hæð allt að 8 m. Þurftarlítið, rætur eru smitaðar geislasvepp sem vinnur köfnunarefni úr jarðveginum fyrir tréð. Notað stakstætt eða í raðir.
Fossvogsstöðin

Caragana arborescens Baunatré
Harðgert, lágvaxið tré hæð 1,5 - 2,5 m. Einstofna eða margstofna. Blómstrar gulum blómum. Mjög nægjusamt á jarðveg. Ekki skal gefa trénu áburð þar sem rótargerlar eru á rótunum og hjálpa trénu við að vinna næringu úr jarðveginum.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Cotoneaster lucidus Gljámispill
Vind- og seltuþolinn, hæð 1 - 2 m. Blaðþéttur runni, fallegir rauðir haustlitir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Elaeagnus commutata Silfurblað
Hægvaxta uppréttur runni, silfurlit blöð og árssprotar, þarf frekar frjóan jarðveg, miðlungsharðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur


Garðyrkjustöðin Grísará

Juniperus squamata ‘Blue Carpet’ Skriðull Himalajaeinir
Meðalharðgerður. Kúlulaga mjög þéttur, hæð 0,5 - 0,8 m. Bláleitt barr. Notaður í beð og steinhæðir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Juniperus squamata ‘Blue Swede’ Himalajaeinir ‘Blue Swede’
Meðal harðgerður. Hálfuppréttur. Bláleitt barr. Notaður í beð og steinhæðir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Garðyrkjustöðin Grísará

Juniperus squamata ‘Meyeri’ Uppréttur Himalajaeinir
Harðgerður og seltuþolinn. Hálfuppréttur, hæð 0,5 - 1 m. Sólelskur en þolir hálfskugga. Með bláleitt barr. Notaður í beð og steinhæðir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Laburnum alpinum Fjallagullregn
Meðalharðgert, hæð 4 - 6 m. Blóm fagurgul, ilmandi í löngum klösum. Á rótunum eru gerlar sem vinna köfnunarefni úr jarðveginum fyrir tréð, því skal varast að nota tilbúinn áburð. Viðkvæmt fyrir klippingu. Notað stakstætt.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Larix decidua Evrópulerki

Larix sukaczewi Rússalerki
Harðgert, sólelskt. Hæð 20 m. Gerir mjög litlar jarðvegskröfur því tréð lifir í sambýli við rótarsvepp sem vinnur köfnunarefni úr jarðveginum. Hefur reynst betur en síberíulerki á Suður- og Vesturlandi.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará

Lonicera deflexicalyx Gultoppur
Stórvaxinn skrautrunni, 150-400 cm, gul blóm á vorin, mjög harðgerður og vindþolinn.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Lonicera involucrata ‘Kera’ Glótoppur ‘Kera’
Runni, 100-150 cm, uppréttur með öran vöxt, dökkgul blóm umlukin dökkrauðum háblöðum, svört ber, miðlungsharðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Lonicera morrowii ‘Norwegica’ Vindtoppur ‘Norwegica’

Lonicera tatarica Rauðtoppur
Skrautrunni, 100-150 cm, rauð blóm og ber, notaður sem stakur runni og í limgerði, harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Lonicera xylosteum Dúntoppur
Stórgerður runni, gulhvít blóm, skuggþolinn, harðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Philadelphus x lemoinei ‘Mount Blanc’ Ilmkóróna ‘Mount Blanc’
Hvít ilmandi blóm, þarf skjólgóðan vaxtarstað en þolir vel hálfskugga, hæð 1-1,5 m.
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Philadelphus lewisii ‘Waterton’ Snækóróna ‘Waterton’

Physocarpus intermedius Arnarkvistill

Physocarpus opulifolius Garðakvistill / Blásurinni
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Picea engelmannii Blágreni
Harðgert, skuggþolið, hæð 10 - 15 m. Þéttvaxið, barrnálarnar eru bláleitar. Notað stakstætt.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Pinus aristrata Broddfura
Harðgerð, sólelsk en þolir hálfskugga, seltuþolin. Hæð 6 - 10 m. Hvítir harpixblettir á nálunum. Notuð stakstæð eða í þyrpingar.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar

Populus trichocarpa ‘Iðunn’ Alaskaösp ‘Iðunn’

Populus trichocarpa ‘Pinni’ Alaskaösp ‘Pinni’

Potentilla fruticosa ‘Goldteppich’ Runnamura ‘Goldteppich’

Potentilla fruticosa ‘Manchurica’ Runnamura ‘Manchurica’

Potentilla fruticosa ‘Micrandra’ Runnamura ‘Micrandra’
Skrautrunni 60 - 100 cm, þéttvaxinn, sítrónugul blóm frá júlí, blómsæll, góður í steinhæðir eða lág limgerði, harðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Garðyrkjustöðin Grísará

Potentilla fruticosa ‘Mount Everest’ Runnamura ‘Mount Everest’

Potentilla fruticosa ‘Sandwedana’ Runnamura ‘Sandwedana’
Skrautrunni 60 - 100 cm, hvít blóm frá ágúst, miðlungsharðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur


Garðyrkjustöðin Grísará

Prunus padus Heggur
Margstofna tré eða stór runni, ilmandi beinhvít blóm, skuggþolinn, allharðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Prunus padus ‘Colorada’ Blóðheggur ‘Colorada’
Stór runni, rauðleit blöð og stórir blómklasar, þarf súran jarðveg, gott skjól og vetrarskýli.
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Ribes lacustre Væturifs

Ribes glandulosum Kirtilrifs
Harðgert. Blómin eru grænleit. Berin eru rauð. Góð þekjuplanta. Fallegir rauðir haustlitir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Ribes laxiflorum ‘LA’ Hélurifs ‘LA’

Ribes laxiflorum ‘Rökkva’ Hélurifs ‘Rökkva’
Harðgert, skuggþolið. Hæð 0,5 - 1,5 m. Blómin rauðleit. Berin dökkblá, mjög ljúffeng fersk. Þroskar berin oft fyrir lok júlí. Greinarnar bæði skriðular og uppréttar. Hentar vel sem þekjuplanta. Fallegir haustlitir. Úr Alaskasöfnun 1985.
Fossvogsstöðin

Ribes uva-cripsa Stikilsber
Fágætur berjarunni, gefur uppskeru í góðu skjóli og sól, frekar harðgerður.
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Rosa moyesii Meyjarrós
Harðgerð og seltuþolin. Hæð 2-3 m, vex auðveldlega upp húsvegg ef stoðgrind er til staðar. Blómin rauð, einföld. Blómstrar á fyrra árs vexti. Blómviljug.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Rosa mayesii ‘Geranium’ Meyjarrós ‘Geranium’

Rosa pimpinellifolia Þyrnirós
Harðgerð. Hæð 0,5-1 m. Blóm hvít, einföld. Dreifir sér með rótarskotum.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Rosa pimpinellifolia ‘KG’ Þyrnirós KG’

Rosa rugosa ‘Ísbjörn’ Nýpurós Ísbjörn’

Rosa rugosa ‘George Will’ Þokkarós ‘George Will’
Fossvogsstöðin

Salix borealis Viðja
Hraðvaxin, margstofna. Hæð 2-4 m. Greinar mjög dökkar allt að því svartar.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Salix pentandra Gljávíðir
Margstofna, hæð 2 - 4 m. Laufgast seint á vorin en heldur laufinu lengur á haustin en aðrar víðitegundir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Salix triandra Möndluvíðir

Salix viminalis ‘Sædís’ Körfuvíðir ‘Sædís’

Sorbus aucuparia Ilmreynir
Harðgerður, vindþolinn, sólelskur. Hæð 5 - 12 m. Blómin hvít og berin hárauð. Fallegir rauðir haustlitir. Notaður stakstæður eða í raðir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Sorbus intermedia Silfurreynir
Harðgerður, sólelskur. Hæð 5 - 12 m. Blómin gráhvít. Berin rauð. Notaður stakstæður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Sorbus hybrida Gráreynir
Harðgerður, seltuþolinn, sólelskur. Hæð 5 - 12 m. Blómin grá-hvít, ilmandi. Notaður stakstæður.
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Sorbus koehneana Koparreynir
Meðalharðgerður, sólelskur. Hæð 2 - 3 m. Hvít blóm og ber. Sterkir rauðir haustlitir. Notaður stakstæður eða í raðir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Sorbus reducata Dvergreynir

Spiraea betulifolia var. aemliana Heiðakvistur
Fossvogsstöðin

Spiraea betulifolia ‘Gauti’ Heiðakvistur ‘Gauti’

Spiraea densiflora ‘Hagi’ Dreyrakvistur ‘Hagi’

Spiraea densiflora ‘Pýri’ Dreyrakvistur ‘Pýri‘

Spiraea douglasii Dögglingskvistur
Skrautrunni, ca. 100 cm, bleik blóm í klösum í ágúst-sept., uppréttur vöxtur, lítið eitt skuggþolinn, skriðull, harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Garðyrkjustöðin Grísará

Spiraea japonica ‘Alpina’ Dvergkvistur ‘Alpina’
Lítill skrautrunni, ca 30 cm, bleikir blómsveipir í ágúst, góður í steinhæðir, miðlungsharðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará


Garðyrkjustöðin Grísará

Spiraea x margaritae Perlukvistur
Lágvaxinn skrautrunni, ca 75 cm, ljósbleikir blómsveipir í ágúst, miðlungsharðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Spiraea x margaritae ‘Hólmfríður’ Hólmfríðarkvistur

Spiraea nipponica ‘June Bride’ Sunnukvistur ‘June Bride’

Spiraea nipponica ‘M 11’ Sunnukvistur ‘M 11’

Spiraea sp. Vonarkvistur
Fossvogsstöðin

Spiraea trilobata Síberíukvistur
Skrautrunni 60-80 cm. Hvít blóm, blómsæll. Góður í steinhæðir, harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Spiraea x watsoniana Dreyrlingskvistur

Syringa josikaea Gljásýrena
Stórvaxinn runni, 200-400 cm, uppréttar greinar, ljósfjólubláir blómklasar í júní-júlí, saltþolinn, harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Syringa josikaea ‘Baldishol’ Gljásýrena ‘Baldishol’

Syringa josikaea ‘Grete Wormdal’ Gljásýrena ‘Grete Wormdal’

Syringa josikaea ‘Haga’ Gljásýrena ‘Haga’

Syringa josikaea ‘Kvísla’ Gljásýrena ‘Kvísla’

Syringa josikaea ‘Odensale’ Gljásýrena ‘Odensale’

Syringa josikaea ‘Rå’ Gljásýrena ‘Rå’

Syringa x prestoniae Fagursýrena
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Syringa x prestoniae ‘Elinor’ Fagursýrena
Skrautrunni, 200-300 cm, frekar hægvaxta, bleikir blómklasar, mjög blómsæll, harðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Syringa x prestoniae ‘Royalty’ Kóngasýrena ‘Royalty’

Syringa reflexa Bogasýrena
Skrautrunni 200-400 cm, útsveigðar greinar, ljósbleikir blómklasar í júní-júlí, saltþolinn, harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Sýringa reflexa ‘Mjöll’ Bogasýrena ‘Mjöll’

Sýringa reflexa ‘Roði’ Bogasýrena ‘Roði’

Syringa Wolfii Bjarmasýrena
Stórvaxinn runni með fjólubláa ilmandi blómskúfa í júní-júlí. Harðgerður og blómviljugur. Hæð 4-6 m.
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Syringa yunnanensis Kínasýrena
Skrautrunni, 200-300 cm, frekar hægvaxta, ljósfjólubláir blómklasar, harðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará

Ulmus glabra ‘Beiarn’ Álmur ‘Beiarn’

Viburnum opulus ‘Rå’ Úlfarunni ‘Rå’

 

Aðalsíða
[email protected]

Hosted by www.Geocities.ws

1