Trjágróður við sjávarsíðuna

Í tímaritunu 'Við ræktum', gefið út af Rit og rækt, byrtist grein eftir Auði I. Ottesen, sem fjallaði um flokkun trjágróðurs við sjávarsíðuna eftir harðgerði. Listinn sem hún birti er hér, með viðbættum myndum og stuttri lýsingu af trjánum.
Tilgangurinn er eingöngu að fá yfirlit yfir þau tré og runna sem mögulegt er að vaxi við sjávarsíðuna.


Trjá og runnategundir sem vaxa áfallalaust við erfiðar aðstæður
Trjá og runnategundir sem þurfa skýlingar fyrir skæðum vindáttum
Trjá og runnategundir sem þrífast best í nokkru skjóli
Trjá og runnategundir sem þurfa skjól
Trjá og runnategnundir sem hafa þrifist illa

Trjá og runnategundir sem þurfa skýlingar fyrir skæðum vindáttum

Berberis x ottawensis ‘Laugardalur’ Sunnubroddur ‘Laugardalur’
Fossvogsstöðin

Betula pubescens Ilmbjörk
Mjög vindþolin, sólelsk en þolir hálfskugga. Breytileg tegund. Hæð allt að 10 m, einstofna eða margstofna. Er til bæði kynbætt upp af fræi og vefjaræktuð og þá mjög einsleit.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Cotoneaster adpressus Skriðmispill
Harðgerður og seltuþolinn. Fljótur að klæða jarðvegsyfirborðið. Blöðin eru dökkgræn og glansandi. Blómin eru hvít eða rauðleit. Fallegir rauðir haustlitir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Cotoneaster integerrimus Grámispill
Hálfuppréttur runni, 50-100 cm, lítil bleik blóm, rauð ber, gulir og rauðir haustlitir, harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Garðyrkjustöðin Grísará

Juniperus communis Íslenskur einir
Harðgerður og seltuþolinn. Hálfuppréttur eða jarðlægur, hæð 0,1 - 0,5 m. Nægjusamur. Notaður í beð og steinhæðir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Lonicera coaerulea Blátoppur
Þéttvaxinn runni, 1-2 m. Góður í limgerði. Gul blóm. Skugg- og saltþolinn og afar harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Lonicera coerulea var. altaica Bergtoppur
Runni, 100-150 sm, fagurgræn blöð, svipar til Blátopps en er vindþolnari, góður í limgerði, skuggþolinn og harðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Lonicera coerulea ‘Þokki’ Berjablátoppur ‘Þokki’
Fossvogsstöðin

Lonicera hispida Klukkutoppur
Skrautrunni 100-150 cm, vöxtur uppréttur græn hrjúf blöð, gulhvít falleg blóm, harðgerður.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Lonicera ledebourii Glæsitoppur
Seltuþolinn, hraðvaxinn, margstofna, hæð 1 - 2 m. Þolir hálfskugga. Blómstrar gulum blómum.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Eggert Baumschulen

Picea sitchensis Sitkagreni
Fljótvaxið, skugg- og seltuþolið. Einstofna, hæð 10 - 25 m. Hefur reynst þolnasta grenið á Suðvesturlandi.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Piceae sticensis ‘Luzidus’ Sitkabastarður
Er blendingur Hvítgr. og Sitkagrenis og líkist báðum tegundum. Reynist sumstaðar fljóvaxnar en aðrar grenitegundir. Tölverður útlitsmunur er innan grenitegunda, bæði á lit nála og vaxtarlagi.
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Réttarhóll

Populus trichocarpa ‘Jóra/Salka’ Alaskaösp ‘Jóra/Salka’
Hraðvaxin, seltuþolin. Hæð 20 m, einstofna. Þurftarfrek. Til eru margir klónar af ösp (Keisari, Jóra og Pinni), misjafnir að úrliti og eiginleikum.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Populus trichocarpa ‘Keisari’ Alaskaösp ‘Keisari’
Hraðvaxin, seltuþolin. Hæð 20 m, einstofna. Þurftarfrek. Til eru margir klónar af ösp (Keisari, Jóra og Pinni), misjafnir að úrliti og eiginleikum.
Fossvogsstöðin

Potentilla fruticosa ‘Arbuscula’ Runnamura ‘Arbuscula’
Harðgerð, fljótvaxin. Gul blóm. Mjög blómviljug.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará


Garðyrkjustöðin Grísará

Potentilla fruticosa ‘Mörk’ Runnamura ‘Mörk’

Potentilla fruticosa ‘Månelys’ Runnamura ‘Månelys’
Harðgerð. Hæð 0,5 - 1 m. Gul blóm. Blómviljug.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Ribes alpinum Fjallarifs
Harðgert, seltuþolið. Hæð 1 - 1,5 m. Myndar þétt, fíngerð limgerði. Gulhvít blóm.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Garðyrkjustöðin Grísará

Ribes bracteosum ‘Perla’ Blárifs ‘Perla’
Harðgert, skuggþolið. Hæð 1 - 1,5 m. Blómin hvít í uppsveigðum 10 - 20 sm löngum klösum. Berin eru dökkblá, góð í sultu. Haustlitur er skærgulur. Úr Alaskasöfnun 1985.
Fossvogsstöðin

Ribes bracteosum ‘Skrúður‘ Blárifs ‘Skrúður‘

Ribes nigrum Sólber
Vind- og seltuþolið. Sólelskt. Berjarunni. Hæð 1 - 2 m. Berin svört.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Ribes nigrum ‘Jänkisjärvi’ Sólber ‘Jänkisjärvi’
Snemmþroska, kelur minna en Melalahti.

Ribes nigrum ‘Melalathi’ Sólber ‘Melalathi’
Berjarunni. Ljósgræn blöð. Gefur góða uppskeru í meðal sumri. Runninn þarf sólríkan vaxtarstað ef ætlunin er að fá góða uppskeru. Best er að planta með minnst 50 cm millibili í beð sem í hefur verið borið vel í af húsdýraáburði. Þegar berin byrja að roðna í ágúst, er gott að setja akrýldúk yfir runnana, til að þrestirnir steli ekki berjunum, Það flýtir líka fyrir þroskun berjanna. Berin koma mest á tveggja ára greinar. Klippa þarf burtu gamlar greinar, svo að runninn vaxi betur. Sólber eru að mestu laus við ásókn skordýra hérlendis, runnarnir heilbrigðir og harðgerðir.
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Réttarhóll

Ribes nigrum ‘Sunderbyn II’ Sólber ‘Sunderbyn II’
Mjög snemmþroska, kelur lítið.

Ribes nigrum ‘Öjebyn’ Sólber ‘Öjebyn’
Seinþroska og með veikar greinar.

Rosa glauca ‘Nova’ Rauðblaðarós ‘Nova’

Rosa majalis x pimpinellifolia ‘Poppius’ Páfrós ‘Poppius’
Harðgerð. Hæð 0,5 - 1 m. Blómin bleik, fyllt og ilmandi. Blómviljug.
Fossvogsstöðin

Rosa rugosa ‘Alba’ Nýpurós ‘Alba’
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Rosa pendulina Fjallarós
Mjög harðgerð. Vind- og seltuþolin. Hæð 1 - 1,5 m. Laufgast snemma og vex vel. Blóm rauðbleik, einföld. Blómstrar á fyrra árs vexti. Dreifir sér með rótarskotum. Hraðvaxin.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gróðrarstöðin Birkihlíð


Garðyrkjustöðin Grísará

Salix alaxensis ‘Ólína’ Grænn Alaskavíðir ‘Ólína’
Hraðvaxinn, seltuþolinn. Hæð 3 - 5 m, margstofna. Hentar vel til skjólmyndunar. Neðra borð blaða er fallega silfurgrátt. Til er bæði grænn og brúnn alaskavíðir og nokkrir klónar af brúnum alaskavíði s.s. Gústa, Hríma og longistyles.
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Salix caprea Selja
Seltuþolin, hæð 5 - 6 m, einstofna eða margstofna. Blómfögur á vorin áður en tréð laufgast, blómin eru gul í reklum. Karlplantan hefur fallegri og meiri blóm en kvenplantan.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Birkihlíð

Salix hookeriana ‘Sandi’ Jörfavíðir ‘Sandi’

Salix phylicifolia ‘Strandir’ Strandavíðir ‘Strandir’
Blöðin dökkgræn og gljáandi. Salt- og vindþolinn. Góður í limgerði. Harðgerður. Hæð allt að 2,5 m.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð

Salix planifolia ‘Flesja’ Demantsvíðir ‘Flesja’
Fossvogsstöðin

Sorbus mougeotti Alpareynir
Meðalharðgerður, seltuþolinn og sólelskur. Hæð 3 - 5 m. Blómin hvít og berin rauð. Notaður stakstæður eða í raðir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur

Spiraea mollifolia Loðkvistur
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Spiraea sp. Birkikvistur
Vind-, seltu-. og skuggþolinn. Hæð 0,3 - 1 m. Mjög blaðþéttur runni. Blómin eru hvít.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Birkihlíð

 

Aðalsíða
[email protected]

Hosted by www.Geocities.ws

1