Íslenski fáninn
Nýjustu fréttir

Egypski fáninn


English

Nyjustu fréttir

Myndaalbúm

Cairo

Egyptaland

Heim


10. september 2001

Jæja, þá er ég búin með arabískunámskeiðið sem ég var á, kláraði fyrir u.þ.b. viku og gekk bara mjög vel, endaði með 8,45 út úr námskeiðinu. Síðasta vikan var reyndar frekar skrýtin vegna þess að bekkjarsystir mín bara hvarf, hún mætti ekki og við vissum ekkert hvað varð um hana, síðan hringdi hún í mig daginn eftir síðasta tímann, rétt fyrir lokaprófið og sagðist hafa skellt sér í smá frí. Hún kom síðan og tók lokaprófið en ég held ekki að hún hafi náð, enda missti hún af ansi miklu þegar hún stakk af í fríið. Í augnablikinu er ég að bíða eftir þþví að byrja aftur á 2. stigi, er að vonast eftir að það nái að myndast hópur (þ.e.a.s. að það komi einhver annar sem vill líka fara á 2.stig) vegna þess að það munar meira en helmingi a verði milli einkatíma og hóptíma.

Við fengum nokkra gesti í síðustu viku, nýgiftu hjónin og nokkra aðra vini, og ég ætlaði náttúrlega að vera voða flott og baka íslenska hrísköku en það endaði nú með því að vera þvílíkt vesen. Ofninn sem ég er með hérna er gasofn og það er engin hitastilling á honum og mér tókst að eyðileggja tvo botna algjörlega og rétt tókst að fá tvo nothæfa botna í kökuna...annar var smá skrýýtinn en ég faldi gallana bara með miklu súkkulaðikremi. En mér tókst sem sagt að koma saman einni köku og sem betur fer þá fannst öllum kakan alveg æðisleg (eins gott miðað við alla vinnuna sem ég lagði í hana!!!).

Fjölbreytnin í sjónvarpsstöðvunum hjá okkur hefur aðeins aukist og mikilvægast af öllu þá erum við núna með Bíórás (á ensku). Þetta kom þannig til að Ómar uppgötvaði af tilviljun að það er sameiginlegur gervihnattadiskur fyrir bygginguna sem nær 2-3 föstum stöðvum, þ.á.m. bíórásinni og þer áskriftin innifalin í viðhaldsgjaldinu sem er borgað mánaðarlega. Það eina sem við þurftum að gera var að fá mann til að tengja úr disknum í sjónvarpið okkar, sem við gerðum náttúrlega einn tveir og tíu. Annað gott sem kom út úr þessu var að við náum egypsku stöðvunum miklu betur núna! Þannig að sjónvarpslífsgæðin okkar hafa stóraukist núna:-)

Man ekki eftir fleiru í bili, en eins og ég hef áður sagt, endilega kíkið í heimsókn reglulega og tékkið á nýjum fréttum!:-)
















Eldri fréttir

Ágúst 2001

Júlí 2001



Fróðleiksmolar:

Arabíska stafrófið

Middle East Times





















Fánar frá:

Flags of the World


Hosted by www.Geocities.ws

1