English
Nyjustu fréttir
Myndaalbúm
Cairo
Egyptaland
Heim
|
31. október 2001
Jæja, þþþá er kominn tími á nýjar fréttir enn og aftur. Héðan er allt fínt að frétta, bara búið að vera nóg að gera, bæði hjá mér og Ómari.
Það er búið að skipta um parket á stofunni (gamla var að mestu ónýýtt vegna lekans sem ég sagði ykkur frá síðast), en eitthvað misheppnaðist það og nú erum við að bíða eftir því að iðnaðarmennirnir komi aftur á morgun til að lagfæra þetta. Það er meira en bara að segja það að fá iðnaðarmenn til að gera hluti almennilega hér. Ég held að næst væri meira vit að fá bara fólk í heimsókn frá Íslandi til að sjá um vinnuna, hehe;-)
Nýja vinnan gengur mjög vel og ég er búin að læra heilmikið, t.d. að gera efnisorðaskrá fyrir bækur, en ég gerði eina slíka um daginn. Það eru fjórir aðrir sem vinna í deildinni minni, allt útlendingar, en þar sem AUC Press gefur út bækur á ensku vilja þþeir hafa ritstjóra sem hafa ensku að móðurmáli. Samstarfsólk mitt er frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Ég er núna komin med eigin tölvu í vinnunni og eigin skrifborð og bara búin að koma mér vel fyrir:-)
Arabískutímarnir ganga mjög vel og fer að styttast í að ég fari í próf þþar. Verð að fara að vera duglegri að læra!!
Eins og ég hef kannski minnst á áður er ég með e-mail lista fyrir erlendar konur sem búa í Egyptalandi og um daginn hittumst við nokkrar í ´klúbbi´ hér og sátum undir berum himni og spjölluðum saman. Á föstudaginn (2. nóvember) ætlum við síðan að hittast aftur heima hjá einni og borða saman. Það er mjög þægilegt og gaman að vera í sambandi við aðra útlendinga sem búa hér og það er svo sannarlega nóg af þeim, en hópurinn okkar er temmilega stórþ/líttill:-)
Aðaltilhlökkunarefnið þessa dagana er tilvonandi heimsókn foreldranna en þau eru núna á Kýýpur og ætla að koma yfir til Egyptalands í næstu viku (8. nóvember) og vera hjá okkur Ómari í fjóra daga. Ég hlakka mikið til að sjá þau aftur og ekki er verra að þau eru með fulla tösku af dóti fyrir mig, þ.á.m. íslenskt nammi, íslenskan ost og upptökur úr sjónvarpinu heima!! JIBBÍ!!!!
Jæja, læt þetta duga í bili. Skrifa vonandi aftur fljótlega!
12. október 2001
Það er nú liðinn rúmlega mánuður síðan ég lét síðast heyra í mér hér á síðunni og biðst ég afökunar á þþví. Eins og allir hafa tekið eftir þá gerðist hræðilegur atburður daginn eftir að ég skrifaði síðast. Ég var að horfa á video og stoppaði til að athuga eitthvað og sá þþá annan turninn á World Trade Center í ljósum logum á sjónvarpsskjánum mínum. Ég vissi fyrst ekkert hvað var að gerast, hélt að það hefði orðið flugslys eða álíka en síðan sá ég lítinn texta á ensku þar sem stóð að tvær flugvélar hefðu rekist á WTC og þar fór kenningin mín út um gluggann. Ég fór beint á netið til að reyna að átta mig á því hvað væri að gerast, hitti þar fyrir Árnýýýju vinkonu mína sem sagði mér nánar frá því sem var í gangi eftir því sem hún sá í sjónvarpinu á Íslandi og á meðan reyndi ég árangurslaust að komast inn á helstu fréttasíðurnar, sem allar lágu niðri. Eftir smá tíma fór sem betur fer ein stöðin hér að sýna CNN beint á ensku þannig að ég gat aðeins fylgst með því sem var að gerast. Næstu daga sat ég í sjokki fyrir framan sjónvarpið og tölvuna í leit að fréttum og upplýsingum um árásirnar, eða þar til tölvan bilaði og við vorum tölvulaus í nokkra daga. Þá tókst mér að koma mér nokkurn veginn aftur í eðlilegt horf og lífið fór að taka á sig kunnuglega mynd á nýý.
Heilmikið hefur gerst hjá okkur Ómari á síðustu vikum. Seinni hluta september sá ég auglýýsingu fyrir starf, eða réttara sagt nokkurs konar lærlingsstöðu, hjá AUC Press, sem er bókaútgáfa bandaríska háskólans hér í Egyptalandi. Auglýsingin vakti strax áhuga minn og ég sótti náttúrlega um og síðan var ég kölluð inn í viðtal 1. október. Ég var nú ekki mjög bjartsýn þegar ég kom út úr viðtalinu, þar sem þeir viltu helst fá starfskraft með ensku að móðurmáli, en síðan fékk ég tölvupóst seinna sama dag og beðin um að byrja næsta dag ef ég gæti. Ég mætti því til vinnu þann 2. október hjá ritstjórnardeild AUC Press og er búin að vera þar í 10 daga núna. Mér líkar rosalega vel og list mjog vel a starfið. Þetta er níu mánaða prógramm og ég er svona alt-muligt manneskja....geri bara það sem ég er beðin um að gera og aðstoða starfsmenn deildarinnar við ýmis störf, fer í sendiferðir o.þ.h. En þar sem þetta er lærlingsstaða er einnig verið að kenna mér hitt og þetta sem viðkemur bókaútgáfu. Það eru þrír aðrir lærlingar hja bókaútgáfunni í öðrum deildum og munum við funda með yfirmönnum okkar reglulega til að sjá hvernig gengur og kynnast hinum hliðunum á starfsemi útgáfunnar. Ég er hæstánægð með þetta nýja starf og finnst líka gaman ad hafa eitthvad fast að gera, það er ekki endalaust hægt að sitja heima í leti mest allan daginn!!!
Ég er líka byrjuð aftur í arabískunáminu, er núna þþrisvar í viku, á fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum og líkar bara vel. Þetta er á sama stað og síðast og ég er með sama kennara. Ágætt að halda áfram núna, áður en ég gleymi öllu sem ég var búin að læra! Talandi um tungumálanám, þþá er Ómar ansi duglegur að læra íslenskuna og skemmtir sér konunglega yfir henni. Ég er rosalega hrifin af því hvað hann er með góðan framburð, en veit nú ekki alveg hvort að ég er fullkomlega hlutlaus dómari a það:-)
Um mánaðarmótin kom það óvænt upp að Ómari var boðin vinna í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Maine fylki, við 15 mánaða verkefni með mögulegri framlengingu. Þetta kom náttúrlega á versta tíma, ég að byrja á fullu í vinnu og námi og allt að ganga svo rosalega vel, en við fyrstu sýýn leit tilboðið mjög vel út og við vorum alvarlega að spá í að taka því en við nánari umhugsun varð niðurstaðan sú að hafna tilboðinu og halda okkur bara hér þar sem okkur líður vel og allt gengur eins og í sögu. Meðal þess sem spilaði inn í ákvörðunina okkar voru náttúrlega atburðirnir 11. september og ástandið í Bandaríkjunum síðan þþþá, sérstaklega þar sem Arabar og múslimar hafa orðið fyrir þónokkru áreiti. Síðan var það náttúrlega ég og hvað ég gæti gert í Maine, sérstaklega þar sem hlutirnir voru að byrja að ganga svona vel hér, ég komin með vinnu, að byrja aftur í arabískunámi og með plön um að sækja um Masters nám hér, plús náttúrlega að ég er farin að kynnast fleira fólki o.þþ.h. Síðast en ekki síst spilaði inn í að við nánari athugun virtist tilboðið ekki jafn gott og í fyrstu, þegar Ómar fékk uppkast að samningnum þá vantaði inn í hann öll helstu atriðin, m.a. stærsta hluta mánaðarlaunanna (sem áttu að vera tviskipt, í egypskum pundum og í dollurum) þannig að það leit allt frekar dularfullt út. Sem sagt, við sögðum nei og ætlum að halda okkur hér og erum bæði mjög sátt við þessa ákvörðun:-)
Í öðrum minni fréttum er að það kom í ljós að einhverjar pípulagnir undir gestabaðherberginu okkar voru allar ónýtar og vitlaust upp settar og það lak vatn út um allt undir baðgólfinu og undir parketið í stofunniþþþ/á ganginum og parketið byrjaði að lyftast upp og brotna í sundur, ekki falleg sjón. Erum að bíða eftir að verkamennirnir komi til að laga þetta, en þeir komu um daginn og rifu allt út úr baðherberginu en þar sem það var svo mikið vatn undir þurfti að bíða eftir að það þornaði áður en þeir gætu haldið áfram. Vonandi verður þetta allt komið í lag bráðlega!
Í lokin vil ég bara segja að allt gengur mjög vel hjá okkur Ómari og okkur líður mjög vel. Ég veit að margir hafa haft áhyggjur af mér hér eftir árásirnar á Bandaríkin en þær hafa haft lítil sjáanleg áhrif hér, lífið gengur sinn vanagang og engin hræðsla eða í ótti í gangi, hvorki meðal egypta né útlendinga. Öryggisgæsla hefur alls stadar verid hert, í varúðarskyni, en það er nokkuð sem maður verður ekki svo mikið var við þar sem öryggisgæsla hefur alltaf verið ansi mikil hér. Þannig að það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af mér.
Og vonandi mun mér ganga betur með að skrifa fréttir í framtíðinni. Endilega fylgist með:-)
|
|
|
Eldri fréttir
september 2001
Ágúst 2001
Júlí 2001
Fróðleiksmolar:
Arabíska stafrófið
Middle East Times
Fánar frá:
|