Íslenski fáninn
Nýjustu fréttir

Egypski fáninn


English

Nyjustu fréttir

Myndaalbúm

Cairo

Egyptaland

Heim


30. nóvember 2001

Jæja, löngu kominn tími á nýjar fréttir...nóvember bara að verða búinn og engar fréttir komnar!! Þetta gengur náttúrlega ekki!



Það er búið að vera heilmikið að gera í Nóvember. Parketið fór allta aftur í rúst og foreldrarnir komu í heimsókn í hálf parketlagða stofu, ekki mjög fallegt, en það skyggði nú ekkert á þá heimsókn, sem heppnaðist med eindæmum vel, var bara allt of stutt, ekki nema fjórir dagar! Sem betur fer voru þþau hér yfir helgi þannig að ég náði tveimur heilum dögum með þþeim. Við tókum þessu frekar rólega, enda þau búin að túristast heilmikið þegar þau voru hér í sumar og búin að sjá allt þetta helsta. Þannig að í staðinn var bara mikið spjallad og verið saman. Við fórum með þau í ´klúbbinn´ og sýýndum þeim hann, en það er svona klúbbur þar sem hægt er að sitja úti og borða eða vera í íþþróttaiðkun, en þessir klúbbar (aðeins opnir meðlimum og gestum þeirra) eru í raun einu útivistarsvæðin í Kaíró. Síðan fórum við í verslunarleiðangur og sýndum þeim verslunarmiðstöðvar hér, bæði þá sem er nálægt þar sem við búum og miklu flottari annars staðar. Fórum út að borða a kínverskan veitingastað í eigu Íslendings (sem pabbi vann með og spilaði körfubolta með fyrir langa löngu - heimurinn er ótrúlega lítill!!). Maturinn var rosalega góður en eigandinn því miður ekki á staðnum, en pabbi skrifaði skilaboð til hans og hann hringdi síðan þannig að þeir gátu spjallað saman í símanum! Á sunnudeginum þurftum við Ómar síðan að fara aftur í vinnu, pabbi og mamma löbbuðu þá um hverfið okkar og komu síðan í heimsókn til mín í vinnuna og við borðuðum hádegismat saman. Síðan fóru þþau á egypska safnið sem er rétt hjá þar sem ég vinn. Síðan var komið að því að ég sýndi hæfileika mína í eldamennskunni og eldaði ég tyrkneskan kjúklingarétt sem fékk bara góðar undirtektir hjá foreldrunum. Ég held meira að segja að ég hafi bara komið mömmu nokkuð á óvænt með hæfileikum mínum!:-) Síðasta daginn fóru pabbi og mamma á markaðinn og komu síðan við í vinnunni hjá mér og við röltum um ´miðbæinn´ og kíktum í einhverjar búðir. Mjög góð heimsókn, en bara allt of stutt.

Ramadan, föstumánuður múslima byrjaði síðan um miðjan mánudðinn og er búið að vera nóg að gera síðan þá, alltaf verið á þeytingi í matarboðum hér og þar. Fastan felst í því að fasta frá dögun til sólarlags, sem er í augnablikinu frá u.þ.b 5 um morguninn til 5 um eftirmiðdaginn. Mánuðinum fylgja síðan skreytingar: "jólaljós", sérstakir lampar og dúkar, og síðan eru búðirnar uppfullar af vörum fyrir sér Ramadan rétti og drykki og er mikið um þþurrkaða ávexti og hnetur. Einnig styttist vinnutíminn og er aðeins til hálf þrjú hjá mér, en það er til þess að allir komist nú heim til sín í tæka tíð til að borða! (og elda ef við á). Við höfum borðað hingað og þangað í Ramadan, mikið heima hjá mömmu Ómars, síðan hjá frænda hans, bróður og fyrir rúmri viku borðuðum við heima hjá vinafólki okkar og vorum að leika okkur og spila langt fram á nótt, alveg rosalega gaman. Við höfum nú ekki verið að bjóða gestum hingað, nema hvað í gær kom tengdó í mat til okkar, í annað skiptið sem hún kemur í heimsókn. Við ákváðum að bjóða henni í eitt skipti í staðinn fyrir að fara til hennar og líka til þþess að sannfæra hana um að ég geti nú eldað eitthvað!! Hún er búin að ganga með það í kollinumað við Ómar borðum ekkert nema pítsur, en mér tókst nú að sannfæra hana um annað á föstudaginn!!

Þetta er svona það helsta úr nóvembermánuði....reyni að koma með desemberfréttir aðeins fyrr í mánuðinum en nóvemberfréttirnar i þetta skiptið!:-)


Eldri fréttir

október 2001

september 2001

Ágúst 2001

Júlí 2001



Fróðleiksmolar:

Arabíska stafrófið

Middle East Times





















Fánar frá:

Flags of the World


Hosted by www.Geocities.ws

1