~:Heim:~

~:Myndaalbúmið hans Lubba Junior:~


Hérna er Lubbi 6 daga gamall!


Sjáiði hvað hann er mikið krútt að kúra svona? =) Þegar hvolpar eru 6 daga gamlir geta þeir ekki opnað
augun ennþá og eru blindir. Flestir kúra bara allan daginn en minn var á fleygjandi ferð út um allan
hvolpakassann! En svo lagðist hann og fór að kúra... =)


Hérna er hann 9 vikna gamall... kominn heim og er að leika sér með Buffa Bangsann sinn. Því miður er
Buffi Bangsi ekki lengur til, hann varð nagaður í tætlur að lokum.


Hér er hann 9 vikna gamall og skilur ekkert í þessu hvað hún Gogga sín er að gera með að vera klæða
hann í þennan bol. Hann hélt að bolurinn væri til að naga og tæta! ...Lubbi tætubuska!


Lubbi í stólnum í stofunni heima!


SuperLubbi! :)


Hérna er Lubbi á harðaspretti úti á fótboltavelli!


Lubbi töffari! ;)


OK, ég stillti honum ekki upp svona, hann er sofandi og bylti sér sjálfur í þessu stöðu.


Önnur sofi-mynd af litla Rúsínurassinum mínum. :)


Mmmm... nammi!!!


Algjör fyrirsæta ;)


5 mánaða flottastur! :)


Þessi mynd fór á jólakortið frá okkur Jólin 2003.


Hérna er Lubbi á Aðfangadagskvöld, obbossla fínn með rauða sluffu og allt saman! :)


Þessi mynd var tekin á Jóladag þegar við fórum upp í Hamar. Það snjóaði ekkert smá mikið hérna í Hveragerði, á Jólanóttina sjálfa! :)

Hosted by www.Geocities.ws

1