 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
|
Hringnót Hringnótin er einnig nefnd herpinót eða snurpunót en hringnætur eru stærstu veiðarfæri sem notuð eru á Íslandsmiðum hvað þyngd og umfang varðar. Þær eru mest notaðar við veiðar á loðnu og síld en undanfarin ár má segja að tveir þriðju hlutar aflamagns af íslenskum miðum hafi komið í hringnót. Mest af aflanum fer til lýsis- og mjölframleiðslu, en nokkuð er fyrst eða saltað. Hringnót er netgirðing sem lögð er í hring utan um torfu af uppsjávarfiski. Við efri brún netsins eru flot sem halda því uppi en neðri teinn nótarinnar er þyngdur með blýsökkum og svonefndur snurpuvír þræddur í gegnum snurpuhringi sem hengdir eru á neðri netteininn. Þegar vírinn er dreginn inn herpist nótin saman að neðan og fiskurinn lokast inni í henni. Smám saman er nethringurinn minnkaður og fiskinum loks dælt upp í skipið með öflugri dælu. |
|
|
|
 |
|
|
|
Hér er verið að kasta nótinni og fskurinn sem verður á vegi hennar á undankomuleið út og niður úr nótinni, því verður kastið að taka eins stuttan tíma og hægt er. |
|
|
|
 |
|
|
|
Enn getur fiskur sloppið |
|
|
|
 |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
Hér er byrjað að snurpa nótinni |
|
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
Myndirnar hér sýna hvernig nótin lokast smátt og smátt þegar snurpað er. |
|
|
|
|
|
|
Hér er búið að snurpa og hægt að taka aflann um borð. |
|
|
 |
|
|
Helstu heimildir: Heimasíða Sjávarútvegsráðuneytisins Myndir: DIFTA |
|
|
 |
|
|
 |
|
 |
|
|
|
|
|