 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
|
Handfæri Handfærið er elsta veiðarfæri landsmanna en er nú líklega að frátöldum önglunum sjálfum óþekkjanlegt frá forverum sínum en á síðustu árum hefur tölvutæknin einnig komið til sögunnar og gert veiðiskapinn auðveldari og afkastameiri. Útbúnaðurinn er nú rúlla, færi, slóði og sökkur. Rúllan er fest við borðstokkinn og á henni er 50-200 m langt færi en á enda þess er festur 6-8 m langur slóði. Við slóðann eru hnýttir taumar og á þeim eru önglarnir en á enda slóðans er sökka. Önglarnir eru oftast um 10 cm langir og mest er beitt gervibeitu, en það er þunnur, litaður gúmmíhólkur. Færinu er slakað niður undir botn eða á það dýpi sem talið er að fiskurinn haldi sig. Síðan er híft og slakað á víxl (keipað) uns fiskurinn hefur bitið á en þá er færið dregið upp. Nú til dags eru nær eingöngu notaðar tölvustýrðar, rafknúnar rúllur sem keipa og hífa á sjálfvirkan hátt. Á handfæri er mest veiddur þorskur og nokkuð af ufsa en veiðarnar eru fyrst og fremst stundaðar á opnum smábátum undir 6 brúttótonnum að stærð. |
|
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Handfæri samanstanda af færarúllu, önglum, girni, slóða og sökku |
|
|
|
|
|
|
 |
|
|
 |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Færabátur |
|
|
|
|
 |
|
|
Heimildir: Heimasíða Sjávarútvegsráðuneytisins Myndir: DNG, Bull, Trefjar og L.P. |
|
|
 |
|
|
 |
|
|
 |
|
|
|
|
|