|
Sandra Bullock leikur hér FBI lögreglumann í einni af sínum bestu myndum. Hún fær það verkefni að taka þátt í fegurðarsamkeppni vegna sprengjuhótunar sem barst. Fyrst tekur hún mjög illa í það vegna þess hve lítt kvenleg hún er en lætur samt undan að lokum. Hún fer til fegrunarsérfræðingsins Victor og hann hjálpar henni að breyta útliti sínu. Hún þarf svo að þykjast heita Gracie Lou Freebush og tekur þátt sem "Miss New Yersey". Myndin er svo með týpískum og fyrirsjáanlegum endi og ég mundi gefa henni 2 stjörnur af 4. |
|