Þó svo að ég sé byrjandi, þá gekk haustvertíðin mjög vel og þá er ég ekki endilega að meina aflann. Sjaldan hef ég áður farið eins oft upp til fjalla á einu hausti og nú.  Ég nýt þess að vera úti í íslenskri náttúru í góðum félagsskap. Ég fór víða og hafði gaman af þótt ég væri ekki í vandræðum með að koma veiðinni heim, enda er það ekki aðalmálið í þessu sporti eins og menn eiga að vita.  Fyrst að njóta og síðan skjóta!

Ég fékk bakteríuna endanlega í fyrravor og dreif mig þá á viðeigandi námskeið til að fá skopvopnaleyfi og veiðikort.  Að því loknu fór ég og keypti mitt fyrsta skotvopn.  Fyrir valinu varð Sarsilmaz Megastar tvíhleypa, sem ég er mjög ánægður með.  Þetta er góð og þægileg byssa og hefur hún reynst mér vel þessa mánuði.

Fyrsti túrinn var ekkert slor.  Ég fór með vini mínum og veiðifélaga, Jóhannesi Þór, í fimm daga ferð norður yfir Kjöl og niður í Skagafjörð í lok ágúst 2001.  Jóhannes hefur átt haglabyssu og farið til veiða í mörg ár. Að veiðimannasið ætla ég ekki að tilgreina frekar veiðistaðina okkar hér, en víst er á myndinni hér að neðan að við vorum a.m.k. í grennd víð Hvítárnes um tíma!  Við fórum eitthvað meira á gæs í september, en lítið var að hafa.














En svo kom október og rjúpnaveiðitímabilið hófst.  Að ganga til rjúpna finnst mér öllu meira gaman heldur en að liggja fyrir gæsinni.  Ég fór fjórum sinnum til rjúpna á tímabilinu og í öll skiptin með Jóhannesi.  Þetta voru alveg sérlega skemmtilegir dagstúrar frá Hafnarfirði og veiðin gekk vel.  Við náðum þeim rjúpum sem okkur vantaði fyrir jólin og villibráðar-kvöldið með kunningjahópnum.

Að ganga til veiða er sport margra hér á landi.  Að minni hálfu er stærsti hluti þessa sports að vera úti og njóta náttúrunnar og kyrrðarinnar á fjöllum uppi.  Hitt fylgir með og er ekki síður gaman.  En það eru alltaf nokkrir veiðimenn sem ferst það ekki vel úr hendi að vera á veiðum.
Þetta eru fyrst og fremst þeir sem þurfa nánast að veiða út um bílgluggann og aka eins langt og þeir komast um viðkvæma jörð, í stað þess að ganga frá veginum og njóta þess sem fyrir augu ber á leiðinni á veiðistað.  Þeir eru einungis sjálfum sér til skammar og koma óorði á þetta skemmtilega sport.  Nokkur orð að lokum til þeirra sem voru að aka utan vega í haust:  Það er sama hvað jeppinn þinn er stór og flottur,  hann verður aldrei eins fallegur og ósnortin íslensk náttúra.  Ef þú getur ekki gengið frá veginum eins og til er ætlast, þá skaltu bara sleppa því að fara á veiðar þar til þú ert hæfur til þess. 

Hannes Jón
  
Febrúar 2002
Jói og Hannes við dagsverkið!
Á gæsaveiðum við Hvítárnes í lok ágúst 2001.
Jóhannes Þór (t.v.) og ég eftir fyrsta daginn.
TIL BAKA
.
Njóttu þess að ganga!
Ekki aka utan vega!
Ekki aka utan vega.
Njóttu þess að ganga.
Mundu að skrifa í gestabókina
Í  V E R T Í Ð A R L O K
AÐALSÍÐA
Hosted by www.Geocities.ws

1