Þekjuplöntur

Þekjuplöntur eru nauðsynlegar sem undirgróður undir tré, runna, limgerði og sérstaklega í blómabeð. Þekjuplönturnar þekja yfirborð jarðvegsins og hindra fræ af illgresi í að spíra. Því þarf bara að halda beðunum hreinum þangað til plönturnar hafa náð að þekja jarðveginn, eftir það nær illgresið ekki að spíra.

Upplýsingarnar í þessum lista eru safnaðar saman úr hinum og þessum áttum og lagaðar að íslenskum aðstæðum. Tilgangurinn með síðunni er eingöngu að gefa yfirlit yfir þær plöntur sem eru í boði, þannig að hægt sé að velja þá plöntu sem passar við þær aðstæður sem eru fyrir í beðinu.

Ajuga reptans Dvergavör
Rautt, fjólublátt lauf, blá blóm í júlí, 20 cm. Góð þekjuplanta, nokkuð skuggþolin, harðgerð.
Ajuga reptans  Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Mörk
Ajuga reptans 'Variegata'  Gróðrarstöðin Mörk
Ajuga reptans
BBC Gardeners' World

Alchemilla mollis Garðamaríustakkur
Gul blóm í júlí, blómin má þurrka, 50 cm, harðgerður.
Gróðrarstöðin Mörk
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Alchemilla mollis
BBC Gardeners' World

Arabis caucasica Garðskriðnablóm
15-20 cm. Hvít blóm í maí, júní. Afar blómrík. Harðgerð. Notuð í beð, steinhæðir og fláa.
Arabis caucasica  Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Mörk
Gróðrarstöðin Réttarhóll
Arabis caucasica 'Variegata'  Gróðrarstöðin Mörk
Arabis caucasica rosea 'La Fraicheur'  Gróðrarstöðin Mörk

Arabis caucasica 'Cloth of Gold'
BBC Gardeners' World

Armeria maritima Geldingahnappur
15-20 cm. Rósrauð blóm í júní. Sendinn jarðvegur, eða steinhæð. Harðgerður.
Armeria maritima 'Alba'  Gróðrarstöðin Mörk
Armeria maritima 'Sea Pink'  Gróðrarstöðin Réttarhóll
Armeria maritima 'Splendens'  Gróðrarstöðin Mörk

Armeria maritima
BBC Gardeners' World

Aubrieta cultorum Hraunbúi
Bleik blóm í maí-júní, 10, cm, þurran stað, frekar viðkvæmur.
Aubrieta cultorum 'Cascade Blue'  Gróðrarstöðin Mörk
Aubrieta cultorum 'Cascade Purple'  Gróðrarstöðin Mörk
Aubrieta cultorum 'Grandiflora Mix'  Gróðrarstöðin Mörk

Aubrieta 'Dr. Mules'
BBC Gardeners' World

Aurinia saxatilis Bergnál (Alyssum saxatile)
15-30 cm, mikið greinóttir og sveigðir stönglar. Lítil, skærgul blóm frá júní. Löng grágræn blöð. Þurr og sendinn jarðvegur, steinhæð eða hallandi malarbeð.

Aurinia saxatile  Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll
Aurinia saxatile 'Compactum Goldkugel'  Gróðrarstöðin Mörk

Aurinia saxatilis 'Berggold' Fjallanál (Alyssum montanum 'Berggold')
Myndar lágar breiður með blómin í löngum klösum, 10-20 cm. Falleg í steinhæð.
Garðyrkjustöðin Grísará

Bergenia cordifolia Hjartasteinbroti
30-50 cm. Með stórum blöðum, sem standa græn yfir veturinn. Rauðbleik blóm í júní. Þolir skugga. Harðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Mörk
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Bergenia cordifolia
BBC Gardeners' World

Cotoneaster dammeri 'Skogholm' Breiðumispill
Gróðrarstöðin Mörk

Cotoneaster dammeri
BBC Gardeners' World

Epimedium alpinum Alpamítur
Tvílit, rauð/gul blóm í maí-júní, falleg blöð, 30-40 cm, skuggþolin.
Gróðrarstöðin Mörk

Geranium Blágresi
Geranium albiflorum Hvítgresi Gróðrarstöðin Mörk
Geranium cinereum Grágresi, bleik blóm í júní, 20 cm, blómstrar lengi. Gróðrarstöðin Mörk
Geranium dalmaticum Dalmatíublágresi, allstór bleik blóm í júlí-ágúst, 15 cm, meðalharðgert. Gróðrarstöðin Mörk
Geranium endressii Haustblágresi, 25-40 cm, rósbleik blóm, blómstrar frá júlí og fram í september. Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll
Geranium erianthum Alaskablágresi, meðalstór 30-40 cm, mjög harðgert, ljósfjólublá m/ dökkfjólubláar æðar. Garðyrkjustöðin Grísará
Geranium himalayense Fagurblágresi Gróðrarstöðin Mörk
Geranium x oxonianum 'Winscombe' Blágresistegund Gróðrarstöðin Réttarhóll
Geranium palustie Mýrablágresi, all þéttvaxið, hæð um 40 cm, stór dökkrósrauð blóm í júlí, ágúst, er sagt sæmilega harðgert. Gróðrarstöðin Réttarhóll
Geranium pratense Garðablágresi Gróðrarstöðin Mörk
Geranium pratense 'Album' Garðablágresi, hvít allstór blóm í júlí, 50-80 cm, harðgert. Gróðrarstöðin Réttarhóll
Geranium sanguineum f. nanum Blóðgresi Gróðrarstöðin Mörk
Geranium sanguineum var. striatum Blóðgresi Gróðrarstöðin Mörk

Geranium pratense 'Album'
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Hedera helix Bergflétta
Klifurplanta allt að 10 m, sígræn blöð, best á norður og vesturhlið, þar sem ekki gætir vorsólar, einnig góð sem þekjuplanta í beð, festir sig á hrjúfa steinveggi, frekar harðgerð.
Hedera helix  Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Mörk
Gróðrarstöðin Réttarhóll
Hedera helix 'Baltica'  Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Mörk

Hedera helix
BBC Gardeners' World

Hypericum calycinum Aronsgullrunni
20-40 cm hæð, gul blóm, blómsæll, sólelskur, miðlungsharðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará

Hypericum calycinum
BBC Gardeners' World

Iberis sempervirens Álfakragi
20-30 cm. Hvít blóm í sveip í júlí. Hálfrunni. Er bestur þar sem gott frárensli er og snjór á vetrum. Sígræn jurt, þarf vetrarskýli til að blómstra.
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Mörk
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Iberis sempervirens
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Lysimachia nummularia Skildingablóm
Gul blóm í ágúst, jarðlæg eða hangandi, þolir skugga, meðalharðgert.
Gróðrarstöðin Mörk

Lysimarchia nummularia
BBC Gardeners' World

Saxifraga arendsii Roðasteinbrjótur
Rauð blóm í júlí, í stórum gisnum skúf. Sígræn blaðhvirfing. Harðgerð.
Gróðrarstöðin Mörk
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Sedum acre Hellunoðri
Gul blóm í júlí-ágúst. 5-10 cm. Íslensk planta. Algeng. Malarbeð. Þurr vaxtarstaður, þar sem snjór er á vetrum. Þarf sól.
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll


Gróðrarstöðin Réttarhóll

Sedum spurium Steinahnoðri
Hvít, bleik eða rauð blóm í ágúst, jarðlægur 5-20 cm, harðgerður.
Gróðrarstöðin Mörk

Aðalsíða
[email protected]

Hosted by www.Geocities.ws

1