Skrautrunnar

Listi yfir skrautrunna sem henta í garða. Listinn er langt frá tæmandi.

Berberis vernae Vorbroddur Þyrnóttur
Harðgerður. Hæð 1 - 2 m. Blómin eru gul, hangandi í klösum.
Fossvogsstöðin

Cotoneaster adpressus Skriðmispill
Harðgerður og seltuþolinn. Jarðlægur runni sem er fljótur að klæða jarðvegsyfirborðið. Blöðin eru dökkgræn og glansandi. Blómin eru hvít eða rauðleit. Fallegir rauðir haustlitir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Cotoneaster adpressus 'Canu' Skriðmispill 'Canu'
Jarðlægur runni, fíngerðari en áðurnefndur skriðmispill. Mjög þéttur með fallega rauða haustliti. Dafo planta.
Fossvogsstöðin

Cotoneaster lucidus Gljámispill
Mikið notaður í miðlungshá limgerði. Hæð 2-3 m. Dökkgræn blöð, sem oft verða rauð á haustin. Hvít lítil blóm, rauð og síðar svört ber. Þolir töluverðan skugga. Harðgerður og vindþolinn.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Hippophae rhamnoides Hafþyrnir
Meðalharðgerður, seltuþolinn. Sólelskur. Dreifir sér með rótarskotum. Þolir vel sendinn og grýttan jarðveg. Á rótunum eru sveppir sem vinna köfnunarefni úr jarðveginum.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará

Hippophae rhamnoides 'Hikul' Hafþyrnir 'Hikul'
Meðalharðgerður, seltuþolinn. Sólelskur. Dreifir sér með rótarskotum. Þolir vel sendinn og grýttan jarðveg. Á rótunum eru sveppir sem köfnunarefni úr jarðveginum. Dafo planta.
Fossvogsstöðin

Lonicera hispida Klukkutoppur
Skrautrunni 100-150 cm, vöxtur uppréttur græn hrjúf blöð, gulhvít falleg blóm, harðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Lonicera ledebourii Glæsitoppur
Harðgerður og seltuþolinn. Hæð 2 - 4 m. Blómin gul og rauðleit, krónublöðin fá á sig dökkrauðan lit og falla ekki fyrr en að hausti.
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Lonicera ledebourii 'Lebo' Glæsitoppur 'Lebo'
Mjög líkur fyrrgreindri tegund. Dafo planta.
Fossvogsstöðin

Lonicera involucrata 'Kera' Glótoppur
Runni, 100-150 cm, uppréttur með öran vöxt, dökkgul blóm umlukin dökkrauðum háblöðum, svört ber, miðlungsharðgerður.
Garðyrkjustöðin Grísará

Lonicera myrtillus Bjöllutoppur
Þéttvaxinn, lítill runni, með smáum dökkgrænum blöðum og skjannahvítum blómum í júlí. Fallegur runni. Virðist sæmilega harðgerður.
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Philadelphus coronarius Snækóróna
Harðgerð, sólelsk en þolir hálfskugga. Hæð 2 - 3 m. Fíngerður runni með sterkilmandi hvítum blómum.
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Ribes alpinum Fjallarifs
Harðgert, seltuþolið. Hæð 1 - 1,5 m. Auðvelt að forma með klippingu. Gulhvít blóm.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará

Ribes alpinum 'Dima' Fjallarifs 'Dima'
Mjög lík fyrrgreindri tegund. Gulhvít blóm. Kvennplanta. Dafo planta.
Fossvogsstöðin

Ribes alpinum 'Hemus' Fjallarifs 'Hemus'
Mjög lík fyrrgreindri tegund. Blómstrar mikið. Blómin smá, mörg saman, fölgul á litinn. Karlplanta. Dafo planta.
Fossvogsstöðin

Ribes bracteosum 'Perla' Blárifs 'Perla'
Harðgert, skuggþolið. Hæð 1 - 1,5 m. Blómin hvít í uppsveigðum 10 - 20 sm löngum klösum. Berin eru dökkblá. Haustlitur er skærgulur. Úr Alaskasöfnun 1985.
Fossvogsstöðin

Salix candida Bjartvíðir
Harðgerður. Hæð 1 - 2 m. Greinar og blöð hvítlóhærð. Þarf að klippa vel 4 - 5 hvert ár, annars vex hann fljótt úr sér.
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Sorbaria sorbifolia Reyniblaðka
Harðgerð, skuggþolin. Hæð 1 - 2 m. Þarf frjóan jarðveg. Blómin hvít, mörg saman í 10 - 12 sm löngum uppréttum skúf. Dreifir sér með rótarskotum.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará

 

Spiraea media Garðakvistur
Meðalharðgerður. Hæð 0,5 - 1 m. Blómin hvít, blómstrar á fyrra árs greinum. Fíngerður runni.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Spiraea sp. 'Birkikvistur' Birkikvistur
Harðgerður. Seltu- , vind- og skuggþolinn. Hæð 0,5 - 1 m. Blómin hvít. Blómstrar á fyrra árs greinum, en getur blómstrað aftur síðsumars og þá á ársvextinum. Fallegir rauðir haustlitir.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Spiraea trilobata Síberíukvistur
Meðalharðgerður. Hæð 0,5 - 1 m. Þéttur, fíngerður runni. Blómin hreinhvít, blómstrar á fyrra árs vexti.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöðin Grísará
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Viburnum edule Bersarunni
Meðalharðgerður. Hæð 0,5 - 1,5 m. Blómin hvít.
Fossvogsstöðin

Vibunum lantana Lambarunni
Meðalharðgerður. Þarf sólríkan stað. Hæð 1 - 2 m. Blómin hvít í sveip, ilmandi.
Fossvogsstöðin

Aðalsíða
[email protected]
Hosted by www.Geocities.ws

1