Klifurplöntur

Hedera Bergflétta

Sígræn, trjákennd klifurplanta, allt að 30 m há, oft þó lægri, stundum jarðskriðul. Blöð gljáandi dökkgræn og leðurkennd, oft með ljósari æðar; þau eru iðulega 3-5-flipuð á óþroskuðum plöntum, en hjartalagaoddbaugótt á þroskuðum blómgreinum; öll heilrend. Blóm 7-9 mm, gulgræn með gula frjóhnappa, í litlum og fremur þéttum sveip, krónublöð aftursveigð með tímanum, blómstrar í september-nóvember. Aldin hnöttótt, 6-8 mm, grænt í fyrstu, síðan brúnt og loks svart. Vex villt í skógum, limgerðum, veggjum og á gömlum byggingum, oft í miklum skugga, upp í 1000 m hæð yfir sjávarmáli, alls staðar nema nyrst í Finnlandi.
Tvær tegundir fást á Íslandi, h. helix og h. helix 'Baltica'.

Vedbend - en vedkommende vedplante
Hedera Gartneriet, innanhús bergfléttur.

Hedera colchica
Stórblöðótt bergflétta, græn.

Hedera colchica 'Dentata Variegata'
Stórblöðótt bergflétta, hvítflekkótt blöð.

Hedera colchica 'Sulphur Heart'
Stórblöðótt bergflétta, gulflekkótt blöð.

Hedera helix Bergflétta
Sígræn, kröftug og nær allt að 10 m. hæð. Festir sig sjálf á hrjúfa steinfleti. Eins góð sem þekjuplanta. Þolir illa vorsól á suðurhlið húsa, best á norður eða vesturhlið. Harðgerð.
Fossvogsstöðin
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur
Gróðrarstöðin Birkihlíð
Gróðrarstöðin Mörk
Gróðrarstöðin Réttarhóll

Hedera helix
BBC Gardeners' World

Hedera helix 'Baltica' Bergflétta 'Baltica'
Harðgerð. Sígræn. Hæð allt að 6 m. Klæðir veggi auðveldlega, en í byrjun þarf að leggja hana að veggnum svo hún festi sig. Ekki er gott að gróðursetja hana á móti hásuðri. Blómin eru lítt áberandi, gulgræn á lit.
Fossvogsstöðin
Gróðrarstöðin Mörk


NATS Nursery ltd

Hedera helix 'Goldheart'
Sígræn með smáum blöðum, með gulum flötum á blöðunum.

Hedera helix 'Helga'
Meðalstór afrúnuð blöð.

Hedera helix 'Hesma'
Smá blöð.

Hedera helix 'Hestor'
Stór blöð, kröftugur vöxtur.

Hedera helix 'Hevil'
Smá blöð.

Hedera helix 'Ivalace'
Smá hrukkótt blöð.

Hedera helix 'Woerneri'
Sígræn, stór blöð með hvítum æðum.

Hedera helix hibernica 'Hestor'
Stór blöð.

Aðalsíða
[email protected]

Hosted by www.Geocities.ws

1